fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Fókus

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn

Fókus
Mánudaginn 29. apríl 2024 18:30

Sigríður Dögg segir lýsingu Hjálmars á starfslokum sínum ekki rétta.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, komst í hann krappan í gær við það hversdagslega verkefni að klæða sig í síðerma bol. Skyndilega fann hún sáran sting í upphandleggnum og svo svíðandi brunatilfinningu.

„Ég reif mig undir eins úr bolnum og var þá ekki risastór humludrottning búin að koma sér fyrir inni í erminni, sem eðlilega var síður en svo sátt við innrásina,“ skrifar Sigríður Dögg í færslu á Facebook-síðu sinni.

Hún grínast með það hún sjálf sé á lífi en særð eftir uppákomuna en óvíst er með örlög drottningarinnar. „Ég reyni nú alltaf að bjarga býflugum sem eru búnar að koma sér í vandræði en þessi gekk aðeins of langt greyið… ég mun ekki að eftirláta henni bolinn minn. Hún fékk hins vegar fylgd út í garð en það fylgir ekki sögunni hvort hún lifði ósköpin af,“ skrifar formaðurinn og birtir mynd af upphandleggnum bólgna en myndin var meira að segja tekin eftir inntöku ofnæmislyfs.

Reynsla Sigríðar Daggar er ágætis áminning um að drottningar af hinum fimm tegundum hungangsflugna, sem hafa náð fótfestu hérlendis, eru skriðnar úr vetrardala og eru óðum að hefjast handa við að byggja upp bú sína og hefja varp. Þrátt fyrir óheppilega árekstra sem þessa er mikilvægt að hafa í huga að hunangsflugur stinga engan að fyrra bragði og þær þarf enginn að óttast. Þær eru afar mikilvægar í náttúrunni og því mikið til unnið að passa upp á þær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 23 klukkutímum

Svona leit hún út fyrir breytingarnar

Svona leit hún út fyrir breytingarnar
Fókus
Í gær

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum

Flutti í sumarbústað við Meðalfellsvatn eftir stórleik í þýskum þáttum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Frænka kærustunnar minnar er ólétt – og ég er pabbinn

Frænka kærustunnar minnar er ólétt – og ég er pabbinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Viðurkenndi loksins að hafa notað megrunarlyf – „Allir halda að þetta sé Ozempic, þetta er annað lyf“

Viðurkenndi loksins að hafa notað megrunarlyf – „Allir halda að þetta sé Ozempic, þetta er annað lyf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“

Vikan á Instagram – „Þetta er mæðradagslúkkið í ár“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“

„Ég upplifði mig sem vandamál eða að ég væri fyrir, það er ekki góður staður að vera á“