fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Fara hörðum orðum um Heru eftir lofgjörð hennar um Ísrael – „Svo fyrirlitlegt og lágkúrulegt að ég er eiginlega orðlaus“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 4. apríl 2024 09:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lofgjörð Heru Bjarkar Þórhallsdóttur, fulltrúa Íslands í Eurovision, um framlag Ísraels í keppninni hefur fallið í grýttan jarðveg á samfélagsmiðlum. Í viðtali sem Hera veitti á ísraelskum Eurovision miðli sagðist hún elska ísraelska lagið og sendi Ísraelum hlýjar kveðjur.

Fjölmargir hafa farið hörðum orðum um söngkonuna í kjölfarið en þátttaka Heru Bjarkar í keppninni hefur verið mjög umdeild.

Eins og alþjóð veit sigraði hún úrslitakeppni Söngvakeppninnar í mars með laginu Scared of Heights. Undanfarinn mánuð hefur mikið verið þrýst á bæði Heru og Ríkisútvarpið að sniðganga Eurovision vegna þátttöku Ísraels en Hera hefur lýst því yfir að hún ætlar út í keppnina. Samkvæmt könnun sem framkvæmd var fyrri hluta mars, eftir að Hera sigraði, vildu fleiri að Ísland myndi sniðganga keppnina heldur en að taka þátt.

Hera hefur hins vegar staðið fast á sínu og sagði þann 12. mars í Bítinu á Bylgjunni að hún væri með þá tilfinningu í maganum að það væri rétt að fara út.

Elskar ísraelska lagið

Segja má að Hera hafi síðan hellt olíu á eldinn þegar hún fór fögrum orðum um lag Ísraels í samtali við ísraelska Eurovision-miðilinn Euromix á kynningarviðburði keppninnar í Madríd síðastliðinn laugardag. Hún sagðist elska lagið og teldi það vera mjög sterkt framlag. Vísir greindi frá.

Til ísraelskra aðdáenda sinna hafði Hera þetta að segja: „Takk kærlega fyrir, ég keppti auðvitað sjálf í Tel Aviv og það var frábært. Ég vona að þið séuð örugg og ég vona innilega að þið njótið keppninnar í ár. Ég vona að Eurovison verði ljós í myrkrinu fyrir okkur öll sem eiga erfitt með að vita af stíðinu og öllum hryllingnum sem er í gangi.“

Orð hennar fóru öfugt ofan í marga og hefur undirskriftalisti verið stofnaður um að Hera dragi sig úr keppni og Bashar Murad fái að keppa fyrir hennar hönd.

Illugi Jökulsson útvarpsmaður, blaðamaður og rithöfundur fór hörðum orðum um Heru og orð hennar í viðtalinu.

„Þetta er svo fyrirlitlegt og lágkúrulegt að ég er eiginlega orðlaus. Það er því best að segja sem fæst. En á mínu heimili að minnsta kosti verður ekki horft á einn einasta þátt um Eurovision og slökkt um leið og hún birtist einhvers staðar í fréttum eða þáttum. Þetta er svo skammarlegt.“

Nokkrir hafa tekið undir með Illuga. „Þetta er viðbjóðslegt,“ segir einn.

Sigmundur Ernir Rúnarsson, fjölmiðlamaður og rithöfundur, segir útspil Heru vera „taktlaust með öllu.“

Fleiri ósáttir

Það hefur einnig skapast umræða um málið í Facebook-hópnum Júróvisjón 2024.

„75% landsmanna hafa ítrekað látið í ljós þá skoðun sína í könnunum að þeir vilji að Ísrael sé úthýst úr keppninni.

Innan við þriðjungur landsmanna hefur svarað því til að þeir styðji að Ísland taki þátt í Eurovision sé Ísrael meðal keppenda. Hlutfallið var það sama eftir úrslitakvöldið.

50-60% vilja að Ísland taki EKKI þátt sé Ísrael með.

Félag tónskálda og textahöfunda hefur krafist sniðgöngu verði Ísrael með.

Yfir 550 tónlistamenn hafa krafist sniðgöngu verði Ísrael með.

FÁSES hefur krafist sniðgöngu verði Ísrael með.

Lagahöfundur Scared of Heights vill ekki fylgja laginu í keppnina af nokkrum ástæðum, m a vegna þess að Ísrael er með.

Af hverju í andskotanum er ekki hægt að virða það við landsmenn að við viljum ekki taka þátt í þessu partýi?

Fyrir hvern þykist hún vera að fara út?

Mér er gersamlega misboðið yfir því hvernig hún hagar sér. Þvílíkur argasti dónaskapur gagnvart landsmönnum,“ sagði einn meðlimur hópsins.

Annar meðlimur bendir á hvað honum hafi þótt vanta úr orðræðu Heru í viðtalinu.

„Þetta er vandamálið í hnotskurn: „Takk kærlega fyrir, ég keppti auðvitað sjálf í Tel Aviv og það var frábært. Ég vona að þið séuð örugg og ég vona innilega að þið njótið keppninnar í ár. Ég vona að Eurovison verði ljós í myrkrinu fyrir okkur öll sem eiga erfitt með að vita af stíðinu og öllum hryllingnum sem er í gangi.“

Ekki minnst á Palestínu, engin fordæming á barnamorðum, árásum Ísraelshers á hjálparstarfsfólk, tálmun á neyðaraðstoð og almennt fordæming á þeim þjóðernishreinsunum sem augljóslega er markmiðið. Lýsir bara samúð með þeim sem finnst erfitt að „vita af stríðinu“ og vonar að ísraelskir aðdáendur hennar séu öruggir.

Þetta er samtalið sem hún ætlar að taka. Mögulega er það erfitt fyrir hana að fara á fullt í gagnrýni á framgöngu Ísraelshers á þessum vettvangi, en þá ætti hún kannski bara að sleppa því að mæta í viðtöl hjá ísraelskum miðlum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur