fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Fókus

Hafdís Björg og Kleini – Ástin kulnuð hjá áhrifavöldunum

Fókus
Miðvikudaginn 12. apríl 2023 15:01

Hafdís og Kristján Einar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástin er úti hjá Haf­dísi Björg Kristjáns­dótt­ur, fitnessdrottningu og eiganda líkamsmeðferðarstofunnar Virago, og Kristjáni Ein­ari Sig­ur­björns­syni, Kleina, samkvæmt öruggum heimildum DV

Athygli vakti fyrir nokkrum dögum þegar fjölmiðlar, þar á meðal DV sögðu frá því að þau væru að deita. Hafdís Björg sagði þá að þau væru vissulega búin að hittast einu sinni, eftir að hafa verið vinir í langan tíma, en of snemmt væri að segja að þau væru orðin par.

Sjá einnig: Hafdís Björg og Kristján Einar eru að deita

„Uu… Nei. Þið megið alveg bíða með hamingjuóskirnar sko. En, við erum að deita en þetta er ekki þannig að við séum tilbúin að opinbera það eitthvað. Maður er bara að prófa sig áfram, finna hvað hentar manni og hvernig maður smellur saman,“ sagði Hafdís Björg í viðtali á FM957.

Sjá einnig: Hafdís ósátt við vinnubrögð Smartlands og segir Kleina ekki vera kærastann sinn – „Ég var ekki einu sinni búin að tala við börnin mín“

Á samfélagsmiðlum um páskahelgina birtu þau bæði myndir af formlegum stefnumótum, en bæði eru með nokkurn fjölda fylgjenda á Instagram. Glöggir fylgjendur hafa þó tekið eftir að þau eru hætt að fylgja hvort öðru þar og samkvæmt heimildum DV eru þau ekki lengur að deita. 

Mynd: Skjáskot Instagram
Mynd: Skjáskot Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 19 klukkutímum
Selena Gomez trúlofuð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Emmsjé Gauti auglýsir eftir ófrískum konum

Emmsjé Gauti auglýsir eftir ófrískum konum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?

Hulin ráðgáta hvenær Jay-Z og Beyoncé byrjuðu saman – Var upphafið óviðeigandi?