fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fókus

Alexander vildi ekki ritalin og gaf sprautufíklum það – „Maður dreifði bara skít allsstaðar“

Bjarki Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. júlí 2021 19:30

Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alexander Svanur er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Það er von en hann byrjaði að fikta við neyslu kannabisefna í 10. bekk og segir frá sinni sögu.

Hann hefur verið án hugbreytandi efna í fjóran og hálfan mánuð núna og segir sjálfur að þrátt fyrir stuttan edrú tíma hefur hann lært margt, bæði um sjálfan sig og sjúkdóminn.

Í uppvextinum var heimilið þjakað af sorg og erfiðum tilfinningum eftir að bróðir Alexanders lést og faðir þeirra lenti í alvarlegu umferðarslysi þar sem ökumaður undir áhrifum lyfja keyrði hann niður, þar sem hann var á mótorhjóli.

Alexander var í grunnskóla settur á ritalin en vildi ekki taka lyfið svo hann losaði sig við það til sprautufíklanna niðri á Granda, eins og hann orðar það. 17 ára gamall var hann kominn í viðskipti við hættulega einstaklinga og segist hafa orðið hræddur og bakkað.

„Ég fór að vinna á bensínstöð og borgaði skuldirnar mínar. Mér hefur aldrei tekist að selja fíkniefni í hagnaði,“ segir Alexander en neyslan hætti ekki og spann hann stóran lygavef til þess að fela neysluna frá kærustunni sinni og foreldrum sínum.

Eftir að tíu ára sambandi Alexanders og þáverandi kærustu hans lauk tók við gott tímabil í hans lífi, þar til neyslan tók öll völd á ný.

„Ég var í einhverri maníu, misnotaði lyfin mín og tók sterk fíkniefni til að keyra mig áfram. Það sem mér finnst verst er hvað mín hegðun hafði áhrif á marga, fjölskylduna mína, vini og vinnuumhverfi, maður dreifði bara skít allsstaðar,“ segir Alexander.

Einn daginn á niðurtúr spurði pabbi hans hvað væri að og Alexander sagði satt, honum leið nógu illa til þess. Á þessum tímapunkti hófst meðferðarsaga, honum var hent út, flutningar milli íbúða, tímabil sem einkennist af miklu ofbeldi og neyslan orðin að volæði.

„Þarna var ég löngu orðinn maðurinn sem ég ætlaði aldrei að verða,“ segir Alexander um þetta tímabil ævi sinnar.

Síðasta fall Alexanders endaði illa og upplifði hann örvæntingu drukknandi manns sem var tilbúinn að gera hvað sem er til að ná bata. Hann talar um fyrirgefningu og tilfinningar og hvernig meðferð í Svíþjóð hefur hjálpað honum að líða betur í eigin skinni.

Það sem stendur upp úr á þessum tíma sem hann hefur verið edrú er að Alexander finnur að honum getur liðið vel edrú, það er allt í lagi að vera alkahólisti og honum má líða vel.  Hann segir það vera ómetanlegt að fá að vera til staðar og fá traust.

„Ég er ótrúlega þakklátur fyrir það í dag hvað foreldrar mínir voru erfiðir við mig þegar ég var að reyna að vera í neyslu.“

Þáttinn má hlusta á í heild sinni hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends

Lisa Kudrow varpar sprengju um handritshöfunda Friends
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna

Mokar inn seðlum á OnlyFans – Þetta þénaði hún fyrstu vikuna
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni

Fyrrum heimili Marilyn orðið sögulegt minnismerki — Eigendur höfða mál gegn borginni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“

Katrín Edda tókst á við lengsta og hæsta hlaupið hingað til – „Ætti eiginlega ekki að kalla þetta hlaup“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum

Setur kerti í sölu innblásin af börnunum