fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Svikamiðillinn Lára – Andafundir komu henni í fangelsi – Halldór Laxness blandaði sér í málið

Auður Ösp
Mánudaginn 24. febrúar 2020 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðeins einu sinni hefur fallið dómur á Íslandi þar sem einstaklingur er sakfelldur fyrir svik við miðilsstörf. Það var árið 1941, þegar Ingibjörg Lára Ágústsdóttir, síðar þekkt sem Lára svikamiðill, var dæmd í árs fangelsi. Lára var á þessum tíma einn frægasti miðill Íslands. Þrír karlmenn voru dæmdir fyrir aðild sína að málinu: fyrrverandi eiginmaður Láru og tveir ástmenn hennar.

Á þessum árum voru allskyns trúarhópar farnir að ryðja sér til rúms á Íslandi í takt við vaxandi vinsældir spíritisma og minnkandi vald kirkjunnar. Dánaraldur var lægri en í dag og fólk þráði heitt að komast í samband við látna ástvini. Miðilsfundir voru þétt setnir víða um land og sumir miðlar urðu þjóðþekktir.

„Frú Lára Ágústsdóttir, sem alþekkt er hér í bænum og víðar af hinum svokölluðu miðilsfundum sínum, liggur nú í Landsspítalanum og er þar í gæzluvarðhaldi lögreglunnar. Hefur hún nú, eftir allnákvæma rannsókn lögreglunnar, játað að hafa framið svik í sambandi við hina svokölluðu andafundi sína, er hún hefir haft fjölda mörg undanfarin ár og selt aðgang að,“ segir í frétt Alþýðublaðsins þann 26. október 1940.

Á miðilsfundum sínum sýndi Lára  meðal annars sýnilega líkamningu, útfrymi og afholdgunarfyrirbrigði. Hún flutti raddir frá látnum ástvinum og sendi skilaboð til annarra um að koma í gegnum raddirnar.

Í grein Alþýðublaðsins kom fram að Lára Ágústsdóttir væri 41 árs að aldri, fædd 1899.

„Hún er fyrir löngu orðin alkunm hér í bænum og þá fyrst og fremst fyrir „anda- fundi“ sína. Hún segir sjálf svo frá að hún hafi byrjað á slíku sambandi við „annan heim“ 18 ára gömul en svikin hefir hún framið í mörg ár og byrjaði á þeim er hún bjó með manni sínum Þorbergi Gunnarssyni.“

Þá kom fram að tekjur Láru af fundum hefðu verið miklar en venjulega sóttu 10–20 manns hvern fund.

„Aðalstjórnandinn var „systir Clementia“, en auk hennar ýmsir aðrir, meðal annars smábörn. Fuglar flugu jafnvel um fundarherbergið, tístu og sungu og Abessiníumenn gengu þar um eins og heima hjá sér,“ segir einnig í forsíðugrein Alþýðublaðsins og þá var birt ljósmynd sem hafði verið tekin á miðilsfundi hjá Láru árið 1934. Þar þóttist Lára hafa fallið í dá og og líkamningur hafði skotið upp kollinum, líkamningur í gervi brúðu sem eiginmaður Láru hafði útbúið.

Það var Sigurður Magnússon, kennari og lögreglumaður, sem afhjúpaði Láru en hún hafði talið honum trú um að hún væri í sambandi við látna konu hans. Fram kom í Alþýðublaðinu:

„Það var Sigurður Magnússon, kennari og lögreglumaður, sem raunverulega afhjúpaði svik frúarinnar. Hann fór stöðugt að sækja fundi til frúarinnar vegna þess að hún sendi honum skilaboð um að látin kona Sigurðar, Anna Guðmundsdóttir hjúkrunarkona, vildi tala við hann, en þau Sigurður og kona hans höfðu oft, meðan hún lifði, rætt um þessi mál, og taldi hún Láru vera svikamiðil.

Sigurður hefur sótt marga fundi til frú Láru undanfarið á Hverfisgötu 83 (Bjarnaborg), og bar upp á hana svikin, því að hann taldi hana svikamiðil. Rannsakaði hann lengi allar aðstæður og var loks talinn vera orðinn svo „góður fundarmaður“, að hann fékk að sitja í stól nr. 1, það er næst stól frúarinnar, þegar á fundi stóð.

Síðastliðið föstudagskvöld var haldinn fundur. Kom Sigurður á fundarstað, laust áður en fundur hófst, frúin sat í stofu og rabbaði við kunningjakonu sína, en Sigurður gekk í fundarherbergið og rannsakaði það hátt og lágt, að sjálfsögðu án vitundar frúarinnar. Í fyrstu fann hann ekkert athugavert. Hann skoðaði stól frúarinnar og inn í skáp, sem var rétt hjá stólnum og fann ekkert. En undir þessum skáp fann hann böggul. Í bögglinum var gardínuefni yst en innan í geysistór gasslæða. Nokkrir gestir voru komnir í herbergið, þar á meðal Ásmundur Gestsson gjaldkeri og Engilbert Guðmundsson tannlæknir, kona hans og önnur kona til. Sýndi Sigurður þeim pakkann og bað þau að leggja sér vel í minni, hvernig um hann væri búið. Lét hann pakkann síðan með sömu ummerkjum undir skápinn, en þó þannig að rétt sá á hann.

Fundurinn hófst síðan. Hinir venjulegu kunningjar komu þarna fram en fundurinn þótti þó ekki merkilegur, enda sögðu andarnir að frúin væri kvefuð og illa fyrir kölluð. Lauk svo fundinum og ljósið var kveikt. Gestirnir fóru að tínast út, en Sigurður bað þá sem séð höfðu pakkann áður en fundur hófst að doka við og sömuleiðis frú Láru. Er allir voru farnir, nema þeir, hann og Lára ætlaði hann að taka pakkann þar sem hann hafði látið hann, en pakkinn var þá ekki á sínum stað heldur kominn alveg upp að þili innst inn undir skáp. Sigurður benti vitnum sínum á þetta, tók síðan pakkann, sýndi vitnunum og var þá allt öðru vísi um hann búið en áður, gardínuefnið var nú innst en gasslæðan vafin utan um það. Lára neitaði því er Sigurður spurði hana, að vita nokkuð um þennan pakka.

Það skal tekið fram að á meðan á fundi stendur er miðillinn í algeru myrkri, en svolítil draugaleg ljósglæta skín á gestina, svo að óglöggt má greina andlit og hendur.“

Málaferlin yfir Láru vöktu gríðarlega athygli og umtal og urðu meðal annars til þess að Halldór Laxness skrifaði pistil um málið í Tímarit Máls og menningar þar sem hann tjáði sig um andatrúarmenn og uppþotið í kringum Láru.

„Mun slík meðferð á trúflokkum vera fátíð hér á landi og tæplega meðmælaverð – jafnvel í augum þeirra, sem setja annars andatrú tiltölulega lágt meðal kristilegra sértrúarflokka. Því hvemig á lögregla eða fógeti að geta skorið úr því, hvar sannleikurinn endar og fölsunin byrjar í trúarbrögðunum?“ spurði nóbelsskáldið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar