

Cristiano Ronaldo Jr. gæti hafnað tækifæri til að spila með föður sínum, Cristiano Ronaldo, og þess í stað valið að færa sig til Evrópu. Ronaldo spilar með Al-Nassr í Sádí Arabíu en uppi hafa verið getgátur um að þeir feðgar myndu spila saman þar á næsta ári.
Samkvæmt fréttum vill hinn ungi leikmaður reyna fyrir sér hjá sterkustu akademíum álfunnar og byggja upp eigin feril utan skugga föður síns. Nokkur af stærstu félögum Evrópu hafa sýnt honum áhuga, þar á meðal Real Madrid, Bayern Munich og Paris Saint-Germain.
Einnig eru Borussia Dortmund og Sporting CP nefnd sem mögulegir áfangastaðir.
Ronaldo Jr. er talinn mjög efnilegur leikmaður og hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í yngri flokkum.