fbpx
Föstudagur 01.maí 2026
Eyjan

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum að einfalda byggingarreglugerð – fer úr 18 köflum í 8

Eyjan
Föstudaginn 1. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verið er að einfalda regluverk vegna íbúðabygginga og höfuðáherslan er á að einföldunin leiði ekki til lakari gæða. Í nýjum húsnæðispakka ríkis og borgar, sem kynntur var í vikunni, eru kvaðir sem snúa að ákveðnu lágmarki af bæði leiguíbúðum og hagkvæmu húsnæði. Þrátt fyrir að mikill fjöldi íbúða standi nú fullbúnar og óseldar er skortur á minni og ódýrari íbúðum. Þetta er skref til að mæta þeirri þörf. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Ragnar Þór Ingólfsson - 2
play-sharp-fill

Ragnar Þór Ingólfsson - 2

Vandamálið hefur verið að hluta til að þær íbúðir sem hafa verið byggðar hafa ekki hentað fyrir þá eftirspurn sem er á markaðnum. Hvernig verður það tryggt? Eða verður það tryggt, af því nú er þörf á minni íbúðum? Er það tryggt með einhverjum hætti í þessum pakka?

„Já, það eru kvaðir inni í uppbyggingarsamningunum sem að snúa að ákveðnu lágmarki af bæði leiguíbúðum og hagkvæmu húsnæði, sem er þá til bæði kaups og leigu, sem er þá skilgreint þannig að við erum með ákveðið lágmark sem á að fara inn í félagslega kerfið, inn í stúdentaíbúðir, inn í hlutdeildarlánakerfið og inn í almenna íbúðakerfið. Og þetta lágmark auðvitað tryggir ákveðinn fjölda, ákveðið hlutfall af íbúðum sem fara inn í þessi kerfi. Síðan er líka íbúðamagnið sem við stefnum að því að byggja upp á þessum reitum. Það gefur líka tilefni til bjartsýni um það að við munum ná að byggja fleiri íbúðir sem eru þá minni heldur en fleiri stærri.

Það er alveg rétt sem þú bendir á, það eru auðvitað að mér skilst samkvæmt síðustu tölum, á annað þúsund íbúðir af nýjum íbúðum sem standa óseldar. Fyrir því eru auðvitað margar ástæður. Það er auðvitað hátt vaxtastig. Íbúðirnar eru alltof dýrar. Það er ekki verið að byggja inn í þá eftirspurn sem er á markaði, bæði varðandi stærð, bílastæði hafa auðvitað áhrif líka. Lögaðilar að sama skapi verið að halda að sér höndum. Þeir hafa verið mjög stórir í uppkaupum á nýju húsnæði. Þannig að ég myndi segja að þessi húsnæðispakki, eða þessi uppbygging, hún mun auðvitað styðja mjög vel við, hvað á ég að segja, markaðinn eða það sem markaðurinn er að kalla eftir, það er að segja hagkvæmar, minni, litlar og meðalstórar íbúðir bæði til kaups og leigu.“

Eitt af því sem menn hafa áhyggjur af í sambandi við svona pakka er að þú smellir ekkert fingri og upp er sprottið íbúðarhús. Ég heyrði viðtal við þig í sjónvarpi núna í vikunni þar sem þú lýstir yfir bjartsýni á það að þetta geti gerst mjög hratt. Er eitthvað sem er öðruvísi núna? Oft þegar svona er ákveðið þá byrjar einhver undirbúningur. Þetta getur tekið nokkur ár.

„Já, húsnæðisuppbygging og húsnæðismarkaðurinn er mjög flókinn og það hjálpar mér auðvitað gríðarlega að hafa smá reynslu af þessum vettvangi þar sem eitt af mínum helstu áherslumálum á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar var húsnæðisuppbyggingin. Ég var svo heppinn að fá að taka þátt í uppbyggingu Bjargs íbúðafélags nánast frá upphafi þegar við byrjuðum að móta hugmyndafræðina í Ráðhúsinu á sínum tíma, sem var afrakstur kjarasamninganna 2015, að móta hvernig við sæjum fyrir okkur nýtt óhagnaðardrifið íbúðakerfi. Þannig að ég er mjög meðvitaður um það allar tímalínur og hvað hlutirnir taka langan tíma, en ég er líka meðvitaður um það hvað við getum gert.

Meðal annars fengum við í Bjargi mjög góða eftirfylgni vegna þess að verkefnið er og var auðvitað einstakt þegar við fórum af stað með þetta. Þá fengum við ákveðna eftirfylgni í skipulaginu hjá borginni á sínum tíma sem gerði það að verkum að við náðum að hraða verkefninu umtalsvert og umtalsvert hraðar heldur en annars hefði verið. En við viljum auðvitað ekki kannski horfa á þetta þannig að við séum að fá einhverjar sérmeðferð umfram aðra þegar kemur að þessari sértæku uppbyggingu heldur erum við núna að fara í gegnum alla skipulagsferla og byggingarreglugerðir til þess að breyta kerfinu og sú vinna gengur mjög vel. Við erum á lokametrunum með einföldun á byggingarreglugerð og mér skilst að lokaniðurstaðan verði eitthvað á þá vegu að hún fari úr 18 köflum í átta. En að sjálfsögðu, það er mjög vandasamt verk að gera slíkt vegna þess að við viljum ekki gera þetta á kostnað gæða og svo framvegis. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að við höldum gæðunum góðum og gerum þá frekari kröfur heldur en hitt varðandi gæðin.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fundarhöld um helgina
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“

Forystufólk Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði sakað um að dreifa röngum upplýsingum um leikskólamál – „AI kokkaði þetta upp af alnetinu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum

Halla Hrund Logadóttir: Forgangsmál að tryggja forgang almennings í orkumálum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki

Þorsteinn Pálsson skrifar: Aðalsmerki verður svikamerki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí

Eyjólfur Ármannsson: Skaðar ekki EES-samninginn að kjósa um framhald viðræðna – EES er norskt batterí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál

Eyþór Eðvarðsson skrifar: Gagnrýni ráðherra á ETS er óábyrg og verri en að „pissa í skóinn“ – Röng nálgun á raunverulegt vandamál
Eyjan
Fyrir 1 viku

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu

Eyjólfur Ármannsson: Myndi vilja sjá það sama hjá okkur og á Möltu
Hide picture