fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Eyjan

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 3. maí 2026 09:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framboð Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi kynnti í gær stefnuskrá sína og helstu áherslumál fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Kynningin fór fram á Eiðistorgi þar sem frambjóðendur áttu samtal við íbúa og kynntu sýn sína á framtíð Seltjarnarness, eins og segir í fréttatilkynningu.

Líf og fjör ríkti á torginu og sannkölluð kosninga stemning myndaðist þegar frambjóðendur gáfu sig á tal við gesti og gangandi. Þar voru málefni bæjarins rædd, framtíðarsýn framboðsins kynnt og lögð áhersla á beint samtal við fólk um þau verkefni sem brýnast er að ráðast í á næsta kjörtímabili.

„Við viljum vera í nánu sambandi við íbúa, hlusta á það sem þeim liggur á hjarta og setja fram skýr stefnumál um þau verkefni sem brýnast er að ráðast í fyrir bæjarfélagið. Sterkt samfélag byggist á trausti, samtali og sameiginlegri sýn um hvert við viljum stefna,“ segir Kristinn Ólafsson, oddviti framboðsins.

Kristinn Ólafsson, oddviti framboðsins

Framboðið stefnir að því að bjóða íbúum málefnalegan, kraftmikinn og samvinnumiðaðan valkost í komandi kosningum, með áherslu á fagleg vinnubrögð, skýra framtíðarsýn og hagsmuni bæjarbúa í forgrunni.

Meðal helstu áherslumála framboðsins eru ábyrg og traust fjármálastjórn, öflugri innviðir og bætt þjónusta við íbúa. Þá leggur framboðið sérstaka áherslu á skólamál, endurbætur á skólahúsnæði, aukinn stuðning við börn og fjölskyldur og betri samfellu milli skóla- og tómstundastarfs. Jafnframt vill framboðið efla samfélagið á Seltjarnarnesi með auknu samtali við íbúa og skýrri sýn á þróun bæjarins til framtíðar.

Af þessu tilefni hefur nýr vefur framboðsins verið settur í loftið, www.xseltjarnarnes.is, þar sem íbúar geta kynnt sér stefnuskrána, frambjóðendur og helstu áherslur framboðsins nánar. Nánari upplýsingar um má finna á www.xseltjarnarnes.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax

Þorsteinn Pálsson skrifar: Samgönguframkvæmdir stoppa strax
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík

Kristrún Frostadóttir: Óttast að Sjálfstæðisflokkurinn muni selja Orkuveituna komist hann til valda í Reykjavík
Eyjan
Fyrir 1 viku

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur

Pétur Marteinsson: Óábyrgt að taka upp Samgöngusáttmálann – fáum ekkert svona samkomulag aftur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar