
Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík segir í nýjum pistli á Facebook að í ljósi þess hversu illa hafi verið staðið að viðhaldi skólabygginga í borginni sé Samfylkingin ekki spennandi valkostur fyrir hugsanlegt meirihlutasamstarf. Hún útilokar ekki beinlínis slíkt samstarf en segir það ekki sinn fyrsta valkost.
Björg segist hafa ákveðið að bjóða sig fram út af mygluðum leikskóla. Sonur hennar hafi beðið í 33 mánuði eftir plássi í skóla sem hafi nú staðið tómur í 6 mánuði. Stór hluti af starfsfólkinu hafi ekki farið með í varaleikskólann í þarnæsta hverfi sem Björg segist skilja vel. Varaleikskólinn sé nú kominn á niðurrifsáætlun borgarinnar:
„Strákurinn minn þurfti að bíða næstum því í þrjú ár eftir leikskólaplássi í Reykjavík og á einu ári mun hann vera í þremur byggingum, tvær þeirra vel myglaðar og ónýtar og önnur að hruni komin. Við getum ekki boðið börnunum okkar og starfsfólkinu upp á þetta.“
Beinir Björg því næst spjótum sínum að Samfylkingunni og segir að í ljósi þess hversu lengi flokkurinn hefur haldið um stjórnartaumana í borginni sé ábyrgð forystufólks hans á þessari stöðu mikil:
„Þetta er staðan út um alla borg. Innviðir eru í molum vegna þess að borgin hefur ekki sinnt viðhaldi og grundvallaratriðum. Of mörg hégómaverkefni hafa fengið framgöngu á kostnað nauðsynja. Samfylkingin hefur meira og minna haldið um stjórnartauma borgarinnar og verið í forsvari í skólamálum síðustu kjörtímabil. Á þeim tíma hefur flokkurinn siglt leikskólum borgarinnar í strand sem og öðru. Pétur og Heiða eru ekki fyrsta dúóið sem ég myndi semja við til þess að knýja fram stórar og nauðsynlegar breytingar á forgangsröðun fyrir næstu kynslóð.“
Línur virðast því hafa skýrst eilítið þegar kemur að mögulegri meirihlutamyndun í Reykjavík.
Í fréttum Vísis í gær útilokaði Ari Edwald oddviti Miðflokksins því sem næst meirihlutasamstarf við Samfylkinguna. Björg sagðist eiga bágt með að sjá flöt á samstarfi við Miðflokkinn vegna afstöðu hans til samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Viðreisn vill halda í sáttmálann en gera þó breytingar á honum en Björg segir Miðflokkinn vilja rífa hann upp með rótum en Ari sagði þó að Miðflokkurinn væri tilbúinn að vinna með sáttmálann. Mesta áherslu lagði Björg þó á að Viðreisn gæti ekki unnið með flokki sem styddi ekki hinsegin samfélagið í Reykjavík og fjölbreytileikann og mannréttindi fólks.
Viðreisn virðist því ekki vilja mynda meirihluta með Miðflokknum eða Samfylkingunni.
Það gæti aukið möguleika Sjálfstæðisflokksins á að komast í meirihluta til muna. Flokkurinn fengi 9 borgarfulltrúa miðað við síðustu skoðanakönnun en Viðreisn og Miðflokkurinn 2 fulltrúa hvor flokkur. Það þyrfti því aðeins 1 borgarfulltrúa til viðbótar til að Sjálfstæðisflokkurinn gæti valið annað hvort Viðreisn eða Miðflokkinn til samstarfs í meirihluta og síðan gæti hann tekið Framsóknarflokkinn með sem þriðja flokk, nái sá flokkur inn manni.
Möguleikar Samfylkingarinnar á að vera í meirihluta fimmta kjörtímabilið í röð virðast hins vegar fara þverrandi. Fylgið hefur farið niður á við í könnunum og Viðreisn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa lýst yfir að ekki sé áhugi til staðar á samstarfi við Samfylkinguna. Miðað við síðustu könnun gætu Samfylkingin, Vinstrið og Sósíalistaflokkurinn ekki myndað meirihluta.
Staða flokksins sem hefur haft borgarstjórastólinn samfleytt frá 2014, fyrir utan þá 13 mánuði á þessu kjörtímabil sem að Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, var borgarstjóri, virðist því vera orðin erfiðari.