
Orri Björnsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og formaður bæjarráðs og Kristín Thoroddsen bæjarfulltrúi flokksins og formaður fræðsluráðs bæjarins birtu um helgina á Facebook tölfræði um innritun í leikskóla í ýmsum sveitarfélögum.
Vildu þau meina að tölfræðin sýndi og sannaði hvað þessi mál stæðu vel í Hafnarfirði og í fleiri sveitarfélögum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta en verr þar sem Samfylkingin er í meirihluta. Því væri Sjálfstæðisflokknum betur treystandi til að vera áfram við stjórnvölinn í Hafnarfirði og það borgaði sig ekki fyrir Hafnfirðinga að treysta Samfylkingunni en þau bjóða sig bæði fram til endurkjörs í kosningunum í næsta mánuði. Samfylkingarfólk hefur hins vegar svarað fullum hálsi og sagt að upplýsingarnar sem Orri og Kristín hafa birt séu rangar. Viðurkennir Orri raunar að hann hafi látið gervigreind taka tölfræðina saman eða kokka hana upp eins og hann orðar það.
Orri birti tölfræðina sem nær yfir innritanir í leikskóla í Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ, Reykjavík og Reykjanesbæ. Tölfræðin er í myndrænu formi en hvergi kemur fram á myndritinu hvaðan tölurnar eru fengnar. Samkvæmt tölunum er meðalaldur barna þegar þau fá pláss á leikskóla í Hafnarfirði 14 mánuðir en 12 mánuðir í Kópavogi og Garðabæ. Minnt er á með mynd af merki Sjálfstæðisflokksins að hann sé í meirihluta í öllum þessum sveitarfélögum en þess þó ekki getið að í Hafnarfirði og Kópavogi er Framsóknaflokkurinn einnig í meirihlutanum.
Samkvæmt tölfræðinni sem Orri birtir er meðalaldur barna sem fá leikskólapláss í Reykjavík 22 mánuðir en 22-29 mánuðir í Reykjanesbæ. Minnir hann á með myndrænum hætti að Samfylkingin sé í meirihluta í báðum sveitarfélögum en minnist ekki á samstarfsflokka Samfylkingarinnar í þessum tveimur sveitarfélögum.
Orri skrifar um tölfræðina:
„Skýrari verður munurinn ekki! Þar sem við höfum verið í meirihluta hefur tekist að tryggja börnum leikskólavist mikið fyrr en þar sem Samfylkingin hefur ráðið ríkjum. Staðreyndirnar eru þarna og það er augljós munur. Sjálfstæðisflokkurinn er fær um að uppfylla væntingar fólks. Samfylkingin er það ekki, við þurfum ekkert að velta okkur upp úr þessu.“
Kristín Thoroddsen endurbirtir síðan tölfræðina með orðunum:
„Já maður spyr sig.“

Athugasemdir við tölfræðina voru fljótar að birtast á Facebook-síðu Orra. Gunnar Axel Axelsson fyrrum bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði spurði Orra hvaðan hann hafi fengið tölurnar en svar Orra var:
„AI kokkaði þetta upp af alnetinu.“
Orri virðist því ekki hafa gert tilraun til að staðreyna hvort upplýsingarnar frá gervigreindinni væru örugglega réttar áður en hann birti þær.
Gunnar Axel benti Orra í kjölfarið á að í þessu samhengi skipti máli að börnum á leikskólaaldri í Hafnarfirði hafi farið fækkandi en Orri sagði á móti að málið snerist ekki um fjöldann heldur biðina eftir plássi. Sagðist Orri annars ekki sjá neinar villur í tölfræðinni og spurði Gunnar Axel hvort hann sæi einhverjar villur. Því svaraði Gunnar Axel játandi:
„Já, og ef þú hefðir kannað hvort upplýsingarnar frá gervigreindinni væru réttar þá hefðir þú nú varla farið að dreifa þessu á samfélagsmiðlum. Þú veist vonandi að inntökualdur í leikskóla var ekki 14 mánaða sl. haust í Hafnarfirði, heldur 15 mánaða en samkvæmt nýjustu fréttum er áætlað að það verði 14 mánaða í haust. Sem skýrist væntanlega að hluta af því að börnum á aldrinum 1-5 ára hefur fækkað aðeins í Hafnarfirði milli áranna 2025-2026. Í Reykjavík var viðmiðið 18 mánaða í fyrra, ekki 22 mánaða eins og þarna kemur fram, og nú er stefnt að því að það verði 16 mánaða næsta haust og er áætlað að inntökualdurinn verði 12 mánaða 2027.“
Þessari athugasemd hefur Orri ekki svarað.
Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, sem er í 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, blandaði sér einnig í umræðuna með athugasemd á Facebook-síðu Kristínar, við deilingu hennar á tölfræðinni frá Orra.

Í athugasemdinn sagði Óskar að samkvæmt tölfræðinni væri verið að bera saman meðalaldur barna við inntöku á leikskóla. Raunin sé hins vegar sú að í tilfelli Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs, í þeim tölum sem Orri birtir, sé um ræða lágmarksinntökualdur en ekki meðalaldur barna þegar þau fái pláss á leikskólum í sveitarfélögunum. Þessi lágmarksinntökualdur sé síðan borin saman við meðalaldur barna þegar þau fái inngöngu á leikskóla í Reykjavík og Reykjanesbæ, sem væntanlega sé hærri tala en lágmarksinntökualdur.
Spurði Óskar Kristínu hvers vegna verið væri að dreifa svona „vitleysu“. Kristín svaraði athugasemdinni ekki en Óskar segir, í eigin Facebook færslu, að Kristín hafi brugðist við þessu með því að blokka hann frá hennar síðu en athugasemdin sést ekki lengur þar og virðist því hafa verið eytt.
Á heimasíðu Reykjanesbæjar er ekki tiltekinn neinn lágmarksinntökualdur barna á leikskóla en þar kemur fram að hægt sé að sækja um fyrir barn um leið og kennitala þess hefur verið skráð en þegar börn verði 12 mánaða fari þau á biðlista.
Það sama er sagt á heimasíðu Reykjavíkurborgar nema hvað að börnin fara á biðlista þegar þau verða 6 mánaða.
Í báðum sveitarfélögum er miðað við að börn komist inn á leikskóla þegar þau verða 18 mánaða en það hefur ekki gengið eftir í mörgum tilfellum.
Á heimasíðu Kópavogs og Hafnarfjarðar er ekki að sjá að minnst sé á neinn sérstakan lágmarksaldur fyrir inntöku í leikskóla en á heimasíðu Garðabæjar segir að flest 12 mánaða börn eigi kost á leikskólaplássi.
Í tilkynningu síðasta haust frá Hafnarfjarðarbæ kom fram að öll 15 mánaða börn væru komin með leikskólapláss.
Á vefnum Bærinn okkar sem Samfylkingin í Hafnarfirði heldur úti segir að við athugun hafi komið í ljós að meðalaldur barna við innritun í leikskóla haustið 2025 hafi ekki verið 14 mánuðir í Hafnarfirði heldur 17,7 mánuðir. Þá hafi hann verið 15 mánuðir í Garðabæ og 19,7 mánuðir í Kópavogi. Sama ár hafi meðalaldurinn í Reykjavík verið 20,4 mánuðir, ekki 22 mánuðir eins og haldið sé fram í umræddri tölfræði Orra.
Það er ekki tekið fram hvaðan þessar tölur eru fengnar.
Segir enn fremur á Bærinn Okkar að tölurnar sem, í tölfræðinni sem Orri birtir, sagðar séu meðalaldur barna við innritun í leikskóla í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi séu ekki meðalaldur heldur inntökualdur, þ.e. hversu gömul yngstu börnin séu sem boðið sé leikskólapláss að hausti. Inntökualdurinn sé talsvert lægri en meðalaldur barna við upphaf leikskólagöngu.
Er minnt á varnaðarorð Höllu Tómasdóttur forseta Ísland um að gervigreind sé notuð til að dreifa röngum og villandi upplýsingum:
„Svo virðist sem viðvörunarorð forsetans hafi ekki náð eyrum Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, sem nýta nú gervigreindina til að „kokka upp“ tölfræði til að koma höggi á pólitíska andstæðinga.“