fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Eyjan

Pétur Marteinsson: Valið stendur milli þess hvort við viljum líkjast Houston eða Kaupmannahöfn

Eyjan
Mánudaginn 11. maí 2026 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kosningar snúast ekki um það sem við viljum gera á morgun heldur framtíðina, hvað við viljum gera fyrir börnin okkar og barnabörn. Við þurfum að ákveða hvort við viljum að Reykjavík verði bílaborg eins og Houston eða frekar eins og Kaupmannahöfn, Stokkhólmur og Osló. Pétur Marteinsson bjó í bæði Osló og Stokkhólmi þegar hann var atvinnumaður í fótbolta og lítur miklu frekar þangað en til bílaborga þegar hann sér fyrir sér framtíð Reykjavíkur.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Pétur Marteinsson - 4
play-sharp-fill

Pétur Marteinsson - 4

„Við höldum alltaf að við séum alveg ein, það eru sömu umræður alls staðar í öllum borgum sem eru að gera það sama og við vegna þess að bílar eru ekkert bara vandamál á Íslandi. Bílar bara taka mikið pláss og það er mengun og fólk er lengi í umferðinni.“

Ég hef búið bæði í New York og London.

„Já, þú getur rétt ímyndað þér það. Þar lokuðu þeir Broadway bara án þess að spyrja kóng né prest. En þetta eru sömu áskoranir í flestum borgum. Ég þekki mjög vel Stokkhólm og Osló, bjó þar lengi og það er verið að ræða, þú getur bara lesið blöð í Stokkhólmi og Osló og það eru nokkurn veginn sömu vandamál.“

Það er gaman að þú skulir nefna þetta. Förum nú aðeins inn í það, þinn atvinnumannaferil og svona. Við hjónin vorum í Stokkhólmi um daginn og það var dásamleg reynsla. Veðrið var ekkert gott en að hoppa upp í Arlanda Express og fara á 190 kílómetra hraða inn í Stokkhólm og metrókerfið þar, neðanjarðarlestarkerfið þar, og síðan ertu með sporvagna og strætó og þú ert með báta. Þetta er alveg dásamlegt almenningssamgöngukerfi.

„Já, flestar borgir hafa verið að gera þetta og því miður höfum við verið það fá. Og við byggðumst upp svo seint að tunnelbanakerfið, metróin í Stokkhólmi, þetta er náttúrlega mjög gamalt kerfi en það er alltaf verið að bæta við það. Metróin í Kaupmannahöfn er tiltölulega nýtt. Það er verið að taka ákvarðanir á hverjum degi út af því að það vita allir að við þurfum gríðarlega sterkar almenningssamgöngur, þægilegar, aðgengilegar og nálægt þar sem fólk býr. Það er akkúrat það sem við erum að gera núna. Þetta er samgöngusáttmálinn í hnotskurn. Þetta er skipulagsmál. Þetta er bara hvernig borg viljum við byggja til framtíðar.

Kosningar snúast ekki um hvað við erum að gera strax. Við erum að taka ákvarðanir núna fyrir framtíðina. Við erum að tala um börnin okkar og barnabörn. Auðvitað er ýmislegt að gera fljótlega. Á fyrstu 100 dögum eru alls konar breytingar. Á hverjum degi er verið að gera einhverjar breytingar. En langflestar ákvarðanir í pólitíkinni eru eitthvað sem mun hafa áhrif á börnin okkar. Þannig að það að vera tortrygginn á almenningssamgöngukerfi sem er borgarlínan er ábyrgðarmál vegna þess að börn framtíðarinnar og hæfni eða samkeppnishæfni Reykjavíkur mun aðeins velta á þessu. Ef við byggjum ekki meðfram þessum ásum og ef við höfum ekki þétt byggðina eins og við höfum gert, ég sagði að á tíu árum hefur fjölgað um 24.000 manns. Ef þeir eru ekki búa þar sem þeir búa núna, ef þeir hefðu bara farið alltaf austar og austar, þá værum við að byggja meira Houston, svona ameríska bílaborg.“

Jú, jú, sem eru afskaplega hvimleiðar borgir, verður að segjast.

„Þær eru mjög óhagkvæmar. Reykjavík, við verðum að hafa það í huga, Reykjavík er gríðarlega stór í ferkílómetrum. Við erum einhver dreifðasta borg sem þekkist. Við getum borið okkur saman við Barcelona eða París, sem er stærstu og þéttustu borgirnar. Það eru 22-24. 000 manns á hverjum ferkílómetra. Við erum innan við þúsund. Skilurðu? Það er óhagkvæmt ef það er eitt hús í Vesturbænum og annað í Úlfarsárdal en við þurfum að moka snjóinn þarna á milli. Við þurfum að taka ruslið þarna á milli. Við þurfum að leggja pípur, við þurfum að leggja skóla. Við verðum að nýta innviðina. Og ég komandi úr rekstri með einhver kaffihús eða veitingastað eða eitthvað, við þurfum ákveðinn fjölda fólks og við þurfum ákveðið mannlíf til þess að þetta virki. Auðvitað eru borgir mismunandi og fólk er mismunandi og fólk er mismunandi eftir æviskeiðum. Sumir vilja vera í þéttri borg þar sem er mikil menning og þú getur farið á tónleika eða farið á íþróttakappleiki eða í leikhús eða kaffihús. Þetta er bara misjafnt. Aðrir vilja vera kannski aðeins í úthverfi, nær náttúrunni, þú getur labbað á fjöll og svoleiðis. Við erum öll mismunandi en við getum ekki byggt borg eins og Houston, eða við getum það. Það eru sumir sem vilja það í framboði núna.

Þetta er valið, þetta er í rauninni ákvörðun sem við erum að taka. Viljum við vera meira eins og Kaupmannahöfn eða meira eins og Houston? Um það snúast kosningarnar að hluta til. Ég held að það sé óhagkvæmara, það verður meiri mengun, meiri bílaumferð og leiðinlegra að búa í borg sem er of dreifð. Þannig að við verðum að hafa þetta í huga.“

Já, já, þetta er alveg rétt. Þú nefndir að þú hefðir búið í Osló og Stokkhólmi. Segðu okkur aðeins, áður en við slúttum þessu með því að fara aftur í pólitíkina, segðu okkur aðeins frá atvinnumannaferlinum.

„Já, ég skrifa undir hjá Hammarby, Hammarby er einn af þremur stóru klúbbunum í Stokkhólmi, 1995. Það er algjörlega dásamlegur klúbbur. Ég mæli með, ef einnhver hefur áhuga á fótbolta og er í Skandinavíu. Reynið að fara á leik með Hammarby. Þetta er alveg kreisí skemmtilegt. Þannig að ég fer þangað og ég bara finn mig rosalega vel. Bara strax á fyrsta ári, ég er orðinn fyrirliði liðsins, einn af yngstu mönnunum og ég er orðinn fyrirliði liðsins mjög snemma, og það gengur mjög vel. Og ég er í Stokkhólmi og þá bjó ég í úthverfi fyrst en síðan flyt ég til Södermalm sem er einn af þessum miðborgarkjörnum.“

Skemmtilegt svæði.

„Já, mjög skemmtilegt. Og ég alveg elska Stokkhólm. Stokkhólmur er frábær og ég er spila þar í þrjú ár og síðan eru einhver möguleiki að fara í stærri deildir og stærri lið. En ég meiðist þarna í lok ársins og þá skrifa ég undir hjá Stabæk í Osló. Þannig að við flytjum þangað. Það er allt í lagi að viðurkenna mistök. Ég held hreinlega að ég hafi verið að elta einhvern pening á þeim tíma. Ég sé kannski ekki beint eftir því, það var dásamlegur tími í Osló. En það voru að einhverju leyti fótboltaleg mistök. Ég hefði átt að halda bara áfram með Hammarby og þeir unnu líka deildina tveimur árum eftir að ég fór. Súrt að fá ekki að taka þátt í því.

Ég er í þrjú ár í Stabæk í Osló sem er hálfgerður Garðabær Osló, svona ríkt hverfi og mikið af einbýlishúsum og svona. Þannig að ég komst ekki eins vel inn í borgina Osló eins og ég gerði í Stokkhólmi, lærði ekki alveg eins mikið á hana. En það var góður tími, eignaðist fullt af vinum og þetta var bara ævintýri. Síðan fer ég til Englands og spila þar í tvö og hálft ár. Það var hálfgerð sorgarsaga, ég var í Stoke City. Ég var nú meiddur meira og minna. Ég held ég eigi bara 20 leiki eða eitthvað á þessum tíma. Svo finn ég bara að það er kominn nýr þjálfari, Tony Pulis, sem síðar Eiður Smári skrifaði undir hjá, miklu seinna, hjá Stoke City. Og komst aldrei í liðið. Þannig að ég fann alveg að þetta væri ekki fyrir mig og hringdi bara í þjálfarann í Hammarby og fékk að koma aftur til Stokkhólms og spilaði þar síðan í fjögur ár. Þetta er svona atvinnumannaferillinn í hnotskurn og bara ótrúleg upplifun að fá tækifæri og mikil forréttindi.

En þetta er ekki bara þessi glamúr sem allir halda, þetta er hörð vinna. Maður er frá fjölskyldu og maður býr í útlöndum og maður þarf alltaf að vera að hugsa um næsta leik einhvern veginn. En þetta er dásamlegt og alveg eitthvað sem maður myndi mæla með fyrir þá sem hafa tækifæri til.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur

Pétur Marteinsson: Fram á stóran part í mínu hjarta – er samt mikill KR-ingur
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?

Sigmundur Ernir skrifar: Góð spurning: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin

Svarthöfði skrifar: Undur veraldar og afhjúpunin
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Hefndaráráttan ríkir í Sjálfstæðisflokknum – ekki í öðrum flokkum

Orðið á götunni: Hefndaráráttan ríkir í Sjálfstæðisflokknum – ekki í öðrum flokkum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“

Athafnamaður ánægður með Kristrúnu en ekki Loga og flokkinn – „Óhreinlyndi og eiginhagsmunagæsla“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Silja „missti andlitið“ vegna ummæla Bjarna um leigjendur Félagsbústaða – Myndband

Silja „missti andlitið“ vegna ummæla Bjarna um leigjendur Félagsbústaða – Myndband
Eyjan
Fyrir 1 viku

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“

Háskólaprófessor um aðild Íslands að ESB: „Ekki málefnalegt að lofa lægri vöxtum, meiri fjárfestingu og hærri lífskjörum án þess að sýna forsendurnar“
Hide picture