
Joao Cancelo fór frá Al-Hilal til Barcelona á láni í upphafi árs og vann La Liga með spænska liðinu í gær.
Cancelo var á sínu öðru tímabili í Sádi-Arabíu en þurfti að finna sér nýtt lið eftir að hann var skilinn eftir utan hóps hjá Al-Hilal í deildinni.
„Það var aðili hjá Al-Hilal sem laug að mér. Þeir sögðu mér að ég yrði í hópnum ég deildinni en svo var ég skilinn eftir utan hans,“ sagði hann eftir að Börsungar unnu Real Madrid í gær og urðu Spánarmeistarar um leið.
„Ég ákvað að halda áfram og nú er ég hér. Ég var að vinna titilinn með Barcelona svo ég er glaður.“