fbpx
Sunnudagur 08.febrúar 2026
Eyjan

Bjarni ber í borðið og hótar stjórnarslitum – Svandís niðurlægð í hvalveiðimálinu

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 14. ágúst 2023 17:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir mun heimila hvalveiðar 1. september. Ólafur Arnarson skrifar í Dagfarapistli á Hringbraut að hann hafi heimildir fyrir því að formenn ríkisstjórnarflokkanna hafi komið saman á lokuðum fundi til að freista þess að halda laskaðri ríkisstjórninni á lífi.

Hann segir Bjarna Benediktsson hafa þótt heldur leiðitaman forsætisráðherranum sem hann kom til valda en nú hafi hann talað tæpitungulaust og látið á sér skilja að Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki sætta sig við frekari yfirgang af hálfu Svandísar í þessu máli. Í hvalveiðimálinu væri ríkisstjórnarsamstarfið í húfi.

Katrín Jakobsdóttir, sem stóð ásamt Svandísi Svavarsdóttur að því að banna hvalveiðarnar með sólarhringsfyrirvara í júní, mun nú hafa sett Svandísi stólinn fyrir dyrnar og því liggur fyrir að bannið verður ekki framlengt um næstu mánaðamót. Með þessu niðurlægir Katrín Svandísi sem verður fórnað í málinu, að sögn Ólafs.

Hann gefur í skyn að eftirmál kunni að verða vegna þessa máls og skrifar í lok pistilsins: „Oft veltir lítil þúfa stóru hlassi. Nú má spyrja hvort Kristján Loftsson eða Svandís Svavarsdóttir teljist vera litla þúfan í þessu máli?“

Dagfara í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Guðni þarf ekki að leiðbeina forsætisráðherra – hann skipar ekki lengur fyrir

Orðið á götunni: Guðni þarf ekki að leiðbeina forsætisráðherra – hann skipar ekki lengur fyrir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Vilhjálmur hefur ekkert unnið enn þá – hrokafullt tal um bæjarstjórastól

Orðið á götunni: Vilhjálmur hefur ekkert unnið enn þá – hrokafullt tal um bæjarstjórastól
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigvaldi Einarsson skrifar: Moltbot breytir leiknum: Þegar tæknin hættir að svara spurningum og fer að stjórna tölvunni þinni

Sigvaldi Einarsson skrifar: Moltbot breytir leiknum: Þegar tæknin hættir að svara spurningum og fer að stjórna tölvunni þinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Raunveruleikinn

Jón Gnarr skrifar: Raunveruleikinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Vilhjálmur kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ

Vilhjálmur kjörinn oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ