

Pétur Marteinsson kynnti kosningaáherslur Samfylkingar í Reykjavík við opnun kosningamiðstöðvar flokksins á Laugavegi 114. Kosningamiðstöðin opnaði kl. 13.30. Í kosningaáherslunum, sem bera yfirskriftina Nýjar áherslur – sama markmið: Borg fyrir fólk, eru kynntar fjórar megináherslur sem Samfylkingin mun setja í forgang á næsta kjörtímabili, fái flokkurinn til þess traust hjá kjósendum.
Flokkurinn hyggst setja börnin í fyrsta sæti og „rúlla út rauða dreglinum” fyrir fólk og fyrirtæki sem vilja láta gott af sér leiða í borginni. Sett eru fram skýr forgangsatriði í uppbyggingu: fulla ferð áfram í samgöngumálum og ræktum hverfiskjarnann. Samfylking ætlar að einbeita sér að þjónustu við íbúa.
„Við megum ekki láta grunninn okkar, þjónustuna við borgarbúa, líða fyrir mikinn vöxt og breytingar í skipulagsmálum. Jú, okkur hefur fjölgað mikið og það hefur aukið álag á kerfin. En við þiggjum þjónustu sem einstaklingar, ekki sem meðaltal eða íbúatala. Traust til borgarstjórnar hefur minnkað og við þurfum að sýna í verki að við séum traustsins verð,” sagði Pétur oddviti Samfylkingar í Reykjavík, við opnun kosningamiðstöðvar í dag.
Smellið hér til að skoða áherslur í heild.

Tillögur Samfylkingar um að setja börnin í fyrsta sæti fela meðal annars í sér fjölgun leikskólaplássa um 1500 og hækkun framlags til viðhalds og uppbyggingar leikskólahúsnæðis. Þá vill flokkurinn að réttur barna til leikskólavistar að loknu fæðingarorlofi verði lögfestur, í samstarfi ríkis og sveitarfélaga.
„Við megum ekki lifa á fornri frægð. Það hafa verið gefin of mörg loforð og þrátt fyrir að við höfum fjárfest mikið í leikskólakerfinu hafa fjölmennustu sveitarfélög landsins enn ekki náð að standa við stóru orðin um að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar.
Og höfum það alveg á hreinu. Samfylkingin mun alltaf standa gegn tvöföldu kerfi í leikskólum og gegn barnaskatti á fjölskyldur. Þvert á móti þá höldum við áfram með systkinaafslátt, tekjutengingar og pössum upp á að það sé þak á leikskólagjöldum hverrar fjölskyldu.”

Því til viðbótar er lagt til að stuðningur verði aukinn í grunnskólum og íslenskukennsla barna af erlendum uppruna tekin föstum tökum, til að stuðla að þátttöku allra í íslensku samfélagi.
Til að styðja við framtakssamt fólk og fyrirtæki hyggst Samfylking „rúlla út rauða dreglinum”. Það vill flokkurinn gera með því að eftirlit komi í stað langra og ófyrirsjáanlegra leyfisferla og fyrirtæki fái einn tengilið til samskipta við borgina. Leyfisveitingar vegna reksturs og framkvæmda verða einfaldaðar til að stytta bíðtíma.
„Flækjustigið er orðið of hátt og afgreiðsla mála tekur of langan tíma. Borgin á að vera staður þar sem hlutirnir gerast, ekki staður þar sem góðar hugmyndir deyja í biðröð. Þess vegna ætlum við að rúlla út „rauða dreglinum“ fyrir fólk og fyrirtæki sem vilja láta gott af sér leiða í borginni. Því að Reykjavíkurborg á að vera í liði með þeim sem vilja byggja upp, skapa og fjárfesta.” segir Pétur.

Skýrt kemur fram að í samgöngumálum sé eina leiðin áfram: Fulla ferð. Hefja framkvæmdir og standa við þá samninga sem Reykjavík hefur gert við ríkið og öll nágrannasveitarfélög okkar hér á höfuðborgarsvæðinu.
„Það versta sem gæti komið fyrir umferðina í Reykjavík væri að hér yrði myndaður meirihluti sem hendir öllu í ruslið sem unnið hefur verið að á síðustu árum í samgöngumálum, til þess eins að setjast aftur að teikniborðinu. Þetta er það sem hægriflokkarnir í Reykjavík boða núna: Nýjar nefndir, meiri tafir. Minni framkvæmdir, engar breytingar.” segir Pétur.
„Samfylkingin hafnar þessum hugmyndum. Við sýnum ábyrgð og stöndum við gerða samninga. Til að breyta borginni: stytta ferðatíma, minnka tafir, auka loftgæði og öryggi. Fyrir fólkið í borginni.”

Flokkurinn stendur með metnaðarfullri uppbyggingu Borgarlínu og mun halda áfram þeim framkvæmdum sem þegar eru hafnar. Áfram verða byggðir upp hjólastígar með áherslu á að tengja hverfi borgarinnar saman.
Tillögur Samfylkingar til að hlúa að og rækta hverfiskjarnann snúa meðal annars að því að einfalda framtakssömu fólki að stofna til reksturs. Þá vill flokkurinn byggja upp íþróttamannvirki um alla borg, skipuleggja nýjan golfvöll og klára uppbyggingu skíðasvæðis í Breiðholti.

„Sundlaugarnar, íþróttafélögin og nálægð við náttúru. Þetta er eitthvað sem við höfum, er einstakt á heimsvísu og við ætlum að standa vörð um. Við ætlum meðal annars að lengja opnunartíma sundlauga, byggja upp ný íþróttamannvirki um alla borg, skipuleggja nýjan golfvöll í borginni og klára uppbyggingu skíðasvæðis í Breiðholti.” segir Pétur

Á næsta kjörtímbili verða byggðar 6000 nýjar íbúðir og flokkurinn mun áfram styðja við öfluga óhagnaðardrifna uppbyggingu.
„Þá munum við standa vörð um öfluga óhagnaðardrifna uppbyggingu, til að tryggja húsnæðisöryggi fyrir alla, ekki aðeins þau sem standa sterkast. Það er jafnaðarmennska fyrir venjulegt fólk og þannig byggjum við betra samfélag.” segir Pétur.
