fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Halldór Benjamín vill að ríkið haldi sig frá kjaraviðræðum þar til á lokasprettinum

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. ágúst 2022 09:00

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mín skoðun hefur verið, ekki bara núna heldur um árabil, að ríkið eigi að halda sig til hlés þar til kjaraviðræður eru komnar á lokametrana. Þá á ríkið að koma inn með fáar og markvissar aðgerðir sem eru til þess fallnar að loka kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Það getur ekki verið þannig að viðræður aðila á almennum vinnumarkaði geti ekki hafist vegna þess að ríkið sé að boða einhverjar aðgerðir og/eða vinnuhópa meðan kjarasamningsviðræður eiga að fara fram.“

Þetta sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið.

Hann sagðist telja að aðkoma ríkisins að kjarasamningum hafi færst í vöxt síðustu 30 ár og hafi líklega náð hámarki við gerð lífskjarasamninganna. Þar hafi ríkið lagt fram lista yfir tugi atriða sem áttu að koma til skoðunar eða framkvæmdar á samningstímabilinu. „Það sýnir að þetta er vandmeðfarið. Þess vegna tel ég að það sé lykilatriði að aðilar vinnumarkaðarins fái að ganga frá kjarasamningi án þess að ríkið stígi um of inn í þá aðgerð,“ sagði hann.

Hann sagðist óska eftir vinnufriði við gerð kjarasamninga og að ASÍ geti náð saman um þau meginverkefni sem snúa að gerð kjarasamninga. ASÍ fari ekki með samningsumboð fyrir aðildarfélög sín í kjaraviðræðunum að þessu sinni. „Hins vegar eru þau mikilvæg, sér í lagi þegar það kemur að þríhliða samtali við stjórnvöld sem ég geri ráð fyrir að muni eiga sér stað á lokametrum kjarasamninganna þegar þeir verða undirritaðir. Við megum aldrei gleyma, þrátt fyrir allan bölmóðinn, að kjarasamningar eru alltaf undirritaðir að lokum,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB

Thomas Möller skrifar: Ísland á heima í ESB
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“

Stálin mættust stinn í gær – „Niðurstaðan af hvoru tveggja er að borgin er stjórnlaus“