fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Leggja til að frítekjumark hækki í 300 þúsund

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 20. nóvember 2020 07:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í drögum fjármálaráðuneytisins, sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda, er lagt til að frítekjumark vegna vaxtatekna einstaklinga verði hækkað úr 150 þúsund krónum í 300 þúsund krónur á ári. Ef þetta nær fram að ganga er reiknað með að tekjur ríkissjóðs af vaxtaskattinum verði 770 milljónum króna lægri á ári.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að ýmsar aðrar breytingar á skattstofni og skattlagningu fjármagnstekna sé að finna í frumvarpinu. Frumvarpið er byggt á tillögum starfshóps um endurskoðun skattstofns fjármagnstekjuskatts með tilliti til verðbólgu. Vísað er til ríkisstjórnarsáttmálans þar sem fram kemur að samhliða hækkun fjármagnstekjuskatts í 22% 2018 verði skattstofninn tekinn til endurskoðunar.

Í frumvarpsdrögunum kemur fram að fyrirhugað sé að hækka frítekjumarkið í 300 þúsund við álagningu næsta árs en um leið verði  sú breyting gerð að frítekjumarkið nái einnig til tekna af arði og söluhagnaði félaga sem eru skráð á markað.

Í frumvarpinu er einnig kveðið á um breytingar á skattlagningu söluhagnaðar af frístundahúsnæði og íbúðarhúsnæði. Einnig eru lagðar til breytingar á reglum um frádrátt á móti innleystum gengishagnaði. Í heildina er áætlað að þessar breytingar hafi í för með sér að tekjur ríkissjóðs lækki um 1,6 til 2 milljarða á ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þetta sagði Áslaug Arna nákvæmlega um framtíðaráformin: „Ég útiloka það ekki“

Þetta sagði Áslaug Arna nákvæmlega um framtíðaráformin: „Ég útiloka það ekki“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Daði Már sækir vatnið yfir bæjarlækinn

Þorsteinn Pálsson skrifar: Daði Már sækir vatnið yfir bæjarlækinn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Brim gerir tilboð um kaup á hlutabréfum í sjálfu sér vegna kaupa á Lýsi

Brim gerir tilboð um kaup á hlutabréfum í sjálfu sér vegna kaupa á Lýsi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Hilmar Þór skrifar: Evrópusambandið, Grikkland og raundæmi

Hilmar Þór skrifar: Evrópusambandið, Grikkland og raundæmi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Albert Jónsson: Bandaríkin munu áfram verja Ísland – ekki síður þeirra hagsmunir en okkar

Albert Jónsson: Bandaríkin munu áfram verja Ísland – ekki síður þeirra hagsmunir en okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Ný borgarstjórn