

Samkvæmt endurskoðuðum tölum Hagstofu Evrópu, Eurostat, var verðlag á íslandi 66% hærra hér á landi en öðrum Evrópulöndum að meðaltali árið 2018.
Er þetta töluvert meiri munur en áður hafði komið fram árið 2018, þegar Eurostat birti samanburð á neysluútgjöldum heimila í Evrópulöndum, en þá var ísland 56% hærri en meðaltalið í löndum innan evrópska efnahagssvæðisins. Morgunblaðið greinir frá.
Á Íslandi var heilbrigðisþjónusta, menning- og tómstundir, skólaganga, hótel-og veitingaþjónusta dýrust í samanburði annarra landa, en Ísland var í þriðja sæti yfir mat og drykk, og í öðru sæti yfir áfengi og tóbak, sem og samgöngum.
Samkvæmt úttekt CEOWORLD tímaritsins í febrúar, er Ísland þriðja dýrasta land í heimi. Ísland hefur gjarnan verið efst á listum þegar kemur að ýmiskonar kostnaði, hvort sem er á fasteignum,- leigu,- mat, eða bjór.
Nú síðast í janúar var Ísland dýrasta land í heimi samkvæmt úttekt Business Insider.
Samkvæmt lista CEOWORLD, sem birtur var þann 2. febrúar, er Sviss dýrasta landið til að búa í, þá Noregur og loks Ísland í þriðja sæti. Þá koma Japan, Danmörk Bahama eyjur, Lúxemborg, Ísrael, Singapúr og Suður- Kórea.
Ódýrasta land heims er Pakistan, en 132 lönd eru á listanum.
Tölfræði CEOWORLD er fengin frá ýmsum rannsóknum og opinberri tölfræði og vísitölum er snerta húsnæði, fatakostnað, leigubílakostnað, internetkostnað, matvöruverð, samgöngukostnað, og verð á matsölustöðum.
Hér má sjá topp 20 dýrustu löndin en listann í heild sinni má sjá hér.