fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Neita að upplýsa um kostnað og Vilhjálmur Birgis er brjálaður – „Hver gaf Landsvirkjun leyfi?!“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 9. október 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Er ekki rétt að byrja á því að spyrja hver gaf Landsvirkjun leyfi til að eyða jafnvel stórum upphæðum í að kanna undirbúning á lagningu á sæstreng til Íslands, sérstaklega í ljósi þess að nánast allir stjórnmálaflokkar hafa talað um að ekki standi til að leggja sæstreng hingað til lands?“

spyr Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ, í tilefni þess að Landsvirkjun neitar að veita upplýsingar um kostnað vegna undirbúnings lagningar Sæstrengs.

Slátrari stóriðjunnar

Vilhjálmur nefnir sem fyrr, að hækkun Landsvirkjunar á raforkuverði til stóriðjunnar sé markviss liður í því að „slátra“ fyrirtækjum, svo hægt verði að réttlæta lagningu sæstrengs hingað til lands:

„Er kannski eitthvað sem haldið er leyndu fyrir almenningi? Það skildi þó aldrei vera að markmiðið með þessum gríðarlegum raforkuhækkunum sem orkufrekur iðnaður hefur mátt þola á síðustu mánuðum sé einn liðurinn í því að slátra þeim iðnaði þannig að Landsvirkjun geti kallað hátt og skýrt eftir nokkur ár eða áratug að núna verði að leggja sæstreng til Íslands. Allavega er það algjörlega magnað að Landsvirkjun neiti að gefa upp kostnað við undirbúnings lagningar sæstrengs.“

Landsvirkjun undanþegin upplýsingalögum

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins,  lagði fram fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um hver kostnaðurinn væri hjá Landsvirkjun vegna lagningar sæstrengs.

Í svarinu ber Bjarni því við að Landsvirkjun telji sig undanþegna ákvæðum upplýsingalaga og þar sem upplýsingarnar séu viðskiptalegs eðlis sé ekki unnt að miðla þeim. Því hafi fjármálaráðuneytið ekki upplýsingar um kostnaðinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun