fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Öldrunargúlag Kópavogs

Eyjan
Laugardaginn 3. febrúar 2024 06:00

Óttar Guðmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Grettis sögu er fjallað um Þorstein Drómund, hálfbróður Grettis. Hann fór alla leið suður í Miklagarð  (Istanbul) til að drepa Þorbjörn öngul banamann bróður síns. Drómundi var kastað í fangelsi en tókst að syngja sig úr prísundinni. Hann tók saman við gifta konu, Spes að nafni og bjó með henni. í nokkur ár. Þau settust að lokum í helgan stein sem þýddi að þau fóru í sitthvort klaustrið og biðu þar dauða síns. Drómundur og Spes höfðu lifað ókristilegu lífi og vildu láta refsa sér á lokametrunum. Klaustrin voru einangraður staður þar sem gamalt fólk gat gert yfirbót og beðið endalokanna í dapurlegri einveru. Þannig mátti tryggja eilífa sælu á himnum.

Á dögunum voru kynnt ný áform Kópavogskaupstaðar að byggja íbúðakjarna og hjúkrunarheimili eða „lífsgæðasamfélag“ fyrir eldra fólk við Gunnarshólma við Suðurlandsveg. Þarna á að koma fyrir nokkur þúsund misveikum gamlingjum í einangrun langt frá ys og þys höfuðborgarinnar. Þetta minnir á gamalt snjallræði þegar safna átti börnum af öllu landinu með sérþarfir saman í skóla í Krýsuvík langt frá mannabyggðum. Horfið var frá þeim hugmyndum og börnunum komið í skóla á heimaslóðum.

Það er gleðilegt að Kópavogskaupstaður hefur hætt við þá stefnu að búseta fólks skuli vera blönduð og kynslóðir  lifi saman. Auðvitað á að safna gamla fólkinu saman uppi í sveit svo að aðrir íbúar þurfi ekki að hafa fyrir augunum hrörnun og vandamál ellinnar. Gamalt fólk er rándýr sjónmengun sem ber að einangra og refsa eins og kennt er í Grettis sögu. Gott væri að reisa rammgeran múr í kringum þetta lífsgæðasamfélag. Það fer vel á því að þetta öldrunargúlag fái að heita Gunnarshólmi sem minnir á dapurleg örlög Gunnars á Hlíðarenda. Ófáir gamlingjar munu deyja á þessum stað úr einmanakennd og einangrun og hreinum leiðindum. En þá er tilganginum náð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Aðild að ESB bakdyramegin

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Aðild að ESB bakdyramegin
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Svarthöfði skrifar: Úlfaldi úr mýflugu – margur heldur mig sig – allt í gosmóðu hjá stjórnarandstöðunni?

Svarthöfði skrifar: Úlfaldi úr mýflugu – margur heldur mig sig – allt í gosmóðu hjá stjórnarandstöðunni?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Björn Jón skrifar: Aðdáun á fornköppum

Björn Jón skrifar: Aðdáun á fornköppum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Ísrael hefur sagt sig úr samfélagi siðaðra þjóða

Sigmundur Ernir skrifar: Ísrael hefur sagt sig úr samfélagi siðaðra þjóða
EyjanFastir pennar
13.07.2025

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu

Björn Jón skrifar: Til varnar Íslandssögu Jónasar frá Hriflu
EyjanFastir pennar
12.07.2025

Sigmundur Ernir skrifar: Minnihlutinn á Alþingi hefur ekki neitunarvald

Sigmundur Ernir skrifar: Minnihlutinn á Alþingi hefur ekki neitunarvald