

Danska ríkisútvarpið greindi frá því fyrir stuttu að lögreglan á Suður-Jótlandi lýsti eftir vitnum að alvarlegum atburðum sem áttu sér stað í bænum Gråsten í nótt.
Hópur manna réðst á 49 ára gamlan mann í kringum miðnætti og beitti hann ofbeldi. Tvö börn mannsins sem voru í fylgd með honum voru þvinguð upp í bíl og keyrði hópurinn í burtu á tveimur bílum.
Danska lögreglan hóf þegar í stað leit að börnunum og hefur verið í samskiptum við þýsk lögregluyfirvöld vegna málsins.
Maðurinn hefur átt í forræðisdeilu við móður barnanna og gerir lögreglan fastlega ráð fyrir að sú deila tengist ráninu á börnunum í nótt.
Um er að ræða 10 ára gamlan dreng og 13 ára stúlku.
Báðir bílarnir sem hópurinn ók í burtu á, með börnin innanborðs, eru skráðir í Þýskalandi og því er ekki loku fyrir skotið að börnin hafi verið flutt til Þýskalands.