

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hafði sjálfur yfirumsjón með gerð brúarinnar, sem er sú lengsta í Evrópu. Hún var tekin í notkun 2018.
Þegar Aksyonov ræddi við fréttamenn eftir sprenginguna sagði hann að „staðan væri viðráðanleg, óþægileg, en ekki banvæn“. „Auðvitað hefur þetta vakið tilfinningar og það er heilbrigð löngun til að leita hefnda,“ sagði hann.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni sem varð þremur að bana og olli miklu tjóni á brúnni.