

Jakob Tolstrup, sem sérhæfir sig í rannsóknum á rússneskum utanríkismálum og starfar hjá Árósaháskóla, sagði í samtali við Ekstra Bladet að erfitt sé að lesa í Pútín og stöðu hans.
„Vandinn er að honum hefur mistekist á mörgum sviðum. Efnahagur landsins er slæmur og Rússar hafa beðið fjölda ósigra á vígvellinum. Skyndilega gengur hann ekki lengur á vatni og hann virðist sífellt örvæntingarfyllri,“ sagði Tolstrup.
Hann sagði að þetta ætti í raun og veru að þýða að Pútín sé viðkvæmari en áður en hins vegar sé ekki vitað hvort svo sé.
Hann benti á að kannanir meðal rússnesks almennings hafi sýnt að 30-40% styðji Pútín heilshugar, um 20% styðji hann hóflega og um 30% séu á móti honum. Ekki sé vitað hvaða áhrif stríðið í Úkraínu hafi á fólk og hvort það hefur orðið til þess að hreyfing hafi komist á þau 20% sem teljist hóflegir stuðningsmenn hans.
„Pútín hefur alltaf haldið völdum með því að hafa stuðning almennings og stuðningur almennings virkar eins og nokkurs konar skothelt vesti gegn gagnrýni í einræðisríki. En nú hækkar matvælaverð, efnahagskreppa er skollin á og herkvaðning þar sem vinur og ættingjar fólks eru kallaðir í herinn. Þetta hlýtur að hafa áhrif á vinsældir hans en við vitum það ekki með vissu,“ sagði hann.
Hann benti einnig á að það sé afgerandi fyrir Pútin að njóta stuðnings þeirra sem eru í innsta hringnum í Kreml. Erfitt sé að lesa í stöðuna á þeim bæ en líklega fari stuðningur við hann þverrandi í þeim hópi.
„Líkurnar á valdaráni fara vaxandi en ef ég væri að íhuga valdarán þá myndi ég bíða og sjá hvort málin haldi áfram að þróast á verri veg í Úkraínu. Pútín hefur lagt allt að veði og hann er undir miklum þrýstingi ef Úkraínumönnum tekst áfram að gera Rússum óleik,“ sagði hann.