fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Verð á litlum íbúðum hækkar enn – Nálgast milljón á fermetrann í dýrustu hverfunum

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 26. ágúst 2022 09:00

Fasteignaverð breytist ört.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á einu ári hefur verð lítilla íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 27%. Teikn eru á lofti um að verð á stærri eignum sé farið að lækka en verð þeirra minnstu heldur greinilega áfram að hækka.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.  Fram kemur að íbúðir undir 80 fermetrum haldi áfram að hækka í verði. Í júlí hafi meðal fermetraverð íbúða, í þessum stærðarflokki, í fjölbýli verið 826.000 krónur en hafi verið 819.000 í júní. Þetta kemur fram í fasteignamæliborði Deloitte.

Fyrir ári var fermetraverðið 651.000 krónur og hefur því hækkað um tæplega 27%.

Dýrustu litlu íbúðirnar eru í Vatnsmýri og Skerjafirði en þar nálgast fermetraverðið eina milljón. Þar á eftir koma Smára-, Linda- og Salahverfi í Kópavogi með fermetraverð upp á 970.000 krónur.

Ódýrustu litlu íbúðirnar eru í Breiðholti en þar er fermetraverðið 639.000 krónur.

Nánar er hægt að lesa um málið í Fréttablaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
Eyjan
Fyrir 1 viku

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið