fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Eyjólfur Ármannsson: Verra en þegar við gengum Noregskonungi á hönd 1264 – þjóðaröryggismál að íslensk skip séu skráð hér

Eyjan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef upp kemur krísa á borð við Covid getur heimaríki kallað til sín þau skip sem skráð eru á alþjóðlega skipaskrá þess. Nú er ekkert farskip á Íslandi undir íslenskum fána vegna þess að alþjóðlega íslenska skipaskráin býr ekki við samkeppnishæft rekstrarumhverfi. Við erum eitt fárra ríkja sem ekki er með tonnaskatt heldur einungis virðisaukaskatt. Það er þjóðaröryggismál að eyja í Atlantshafinu sé með skip undir sínum fána. ETS gjöldin í siglingum og flugi eru óhagstæð og ósanngjörn gagnvart Íslandi. Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að horfa á brot úr þættinum:

Eyjólfur Ármannsson - 3
play-sharp-fill

Eyjólfur Ármannsson - 3

„Ég hef líka áhyggjur af samkeppnishæfni í siglingum. Ég hef farið með minnisblað um samkeppnishæfni í siglingum og samkeppnishæfni í flugi líka. Þar náttúrlega er undir það að rekstrarumhverfi fyrir íslensku alþjóðlegu skipaskrána er bara ekkert samkeppnishæft við alþjóðlegar skipaskrár. Það er ekkert farskip á Íslandi undir íslenskum fána og allt fiskeldið er með skip sem eru á alþjóðlegu norsku skipaskránni. Þetta er þjóðaröryggismál.“

Já, þetta er auðvitað þjóðaröryggismál. Er þetta ekki bara eitthvað sem við getum breytt? Er þetta ekki eitthvað sem Alþingi Íslendinga getur breytt?

„Jú, ég stefni á það að fara vonandi með frumvarp næst á næsta vorþingi fram um þetta mál. Það hefur stöðvast. Við erum með alþjóðlega skipaskrá, hún hefur bara ekkert virkað, það eru lög frá 2007 minnir mig. En hún er ekkert samkeppnishæf út af skattamálum og öðru slíku. Við erum eitt af fáum ríkjum sem eru ekki með tonnaskatt á siglingum. Það er bara virðisaukaskattur, tonnaskattur eykur samkeppnishæfni og svo líka náttúrlega varðandi áhafnirnar. En það er að sjálfsögðu þannig að ef þú átt lögheimili á Íslandi og ert að vinna á þessum skipum, þá gilda íslenskir kjarasamningar.

Ég held að Eimskip sé með öll sín skip í Færeyjum. Við erum ekki að fara að gera neitt annað en aðrar þjóðir eru að gera. Allar vörur hérna koma með skipum á alþjóðlegu skipaskránni. Af hverju má það ekki vera íslensk skipaskrá eins og færeysk eða norsk? Það er stórmál. Við sem eyja í Norður-Atlantshafi verðum við að sjá um okkar siglingar. Ég hef sagt að við séum í verri aðstöðu núna en fyrir 1264 þegar við gengum Noregskonungi á hönd og þurftum að semja við hann um að það kæmu átta skip á sumri.

Þetta er líka þannig að ef það kemur krísa eins og Covid og annað slíkt, þá getur heimaríkið kallað flaggskipin til sín. Norðmenn eru með sérstök lög sem raunverulega fjalla um þetta mál. Lögin heita Lov om adgang til rekvisition af skipum undir krísuaðstæðum eða stríði. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem eyþjóð að hafa skipaskrá og skip undir okkar flaggi sem við getum kallað heim þegar kemur yfirvofandi ástand. Þetta er spurning bara um áfallaþol okkar.“

Það er nú því miður, þá er ástandið í heiminum þannig að líkurnar á slíkri krísu hafa aukist en ekki minnkað.

„Já, heldur betur. Við sjáum bara til, ég vonast til þess að geta gert það. Það er þingið sem ákveður á endanum.

Og svo er samkeppnishindrunin í fluginu líka ákveðið áhyggjumál. Þá eru náttúrlega þessi ETS-gjöld líka þar sem eru undir.“

Það eru miklar áhyggjur af því að nú er undanþágan að renna út. Þessi ETS gjöld, þau eru ætluð til þess að ýta fólks- og vöruflutningum í Evrópu inn í lestakerfi, út af vegunum og úr fluginu, inn í lestakerfið. En við erum ekki með lestir.

„Sem eyþjóð í Norður-Atlantshafi, þá byggja okkar flugsamgöngur á Keflavík sem hub, sem sagt Icelandair módelið byggir á því. Það er flogið Norður-Atlantshafsleiðin og svo hoppum við á seinni legginn eða fyrri legginn eftir því sem það er. Og gjöldin eru þannig, og ég hef talað mikið um þetta r erlendis, bara til að lobbía fyrir hagsmunum Íslands. Þá er það þannig að ef þú flýgur, flýgur Berlín-Frankfurt-Seattle, þá er það 16 evrur, ETS gjaldið. Ef þú flýgur Berlín-New York í New Jersey-Seattle, þá ertu með 6 evrur.

En síðan ef þú flýgur Berlín-Ísland-Seattle, það er vía Keflavík, þá ertu kominn eitthvað í kringum 30 evrur. Hvar er minnsti útblásturinn? Jú, það er ef þú ferð í gegnum Ísland, þetta er kúla sem við erum að fljúga á. Og þetta er gríðarlega ósanngjarnt gagnvart okkur. Þetta er allt öðruvísi þegar þú ert að fljúga inni á meginlandinu frá kannski Berlín til Parísar eða eitthvað svoleiðis þegar þú getur líka tekið lestina.

Við erum í samkeppni við bandarísku og bresku flugfélögin, sérstaklega bandarísku náttúrlega, á Norður-Atlantshafsleiðinni. Þau eru ekki með þessi ETS-gjöld. Það er svokölluð stoppklásúla fyrir bandarísku flugfélögin. Ég held hún renni út núna í lok árs og taki gildi á bandarísku flugfélögin 1. janúar. Þá ætla ég allavega að fylgjast með Twitter hjá Trump. Allir þessir ráðherrar sem ég hef talað við úti, samgönguráðherrar úti, þeir eru allir sammála mér, allir. Þetta var litað, hvort það lenti í umhverfisnefndinni í Brussel eða eitthvað svoleiðis. Það eru miklar áhyggjur af samkeppnishæfni flugs í Evrópu og líka siglinga. Ég veit til dæmis, ég fylgist bara með alþjóðlegum fréttum, að þá veit ég til dæmis að Air France-KLM, þeir ætla að fara að draga úr Asíuflugi sínu um helming. út af gjöldum, út af þessum gjöldum. Þannig að þetta er mikið til að vinna.

Varðandi siglingarnar líka, að þá er það þannig að ef að transitgámur sem færi, , Ísland sem er transitlandið í Atlantshafssiglingunum, þá værum við að borga 100% til Íslands og svo 50% Ísland-Bandaríkin, en ef þú ert að sigla frá meginlandinu til Ameríku, þá er 50% alla leiðina. Þetta skemmir svo fyrir okkur að við notum hnattstöðu okkar sem land á milli Evrópu og Ameríku, bæði í flugi og siglingu. Ósanngjarnt beinlínis.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Allir viti um hvað verði spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Markvisst unnið að því að afvegaleiða umræðuna

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Markvisst unnið að því að afvegaleiða umræðuna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr

Orðið á götunni: Systurflokkur Miðflokksins tapar stórt – bandamanni Trumps og Pútins hafnað og fleygt á dyr
Eyjan
Fyrir 1 viku

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað

Þorsteinn Pálsson skrifar: Engin dýrtíð á Vopnafirði – allt skrifað
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
Hide picture