fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Hinrik Ingi hnepptur í síbrotagæslu – Gekk berserksgang á Reykjanesbraut

Ritstjórn DV
Mánudaginn 24. janúar 2022 13:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinrik Ingi Óskarsson, crossfitkappi, var um helgina úrskurðaður í síbrotagæslu til 17. febrúar næstkomandi samkvæmt heimildum Vísis.

DV birti fyrst miðla í síðustu viku óhuggulegt myndband sem tekið var upp af vegfaranda á Reykjanesbraut. Þar mátti sjá Hinrik Inga stíga út úr bíl sínum á hraðbrautinni og ráðast fyrirvaralaust að rúðu annars bíl.

Sjá einnig: Svakalegt mynband frá Reykjanesbraut:Steig úr bílnum og gekk berserksgang – „Hvað er hann að gera?“

Samsett mynd – Skjáskot úr mynbandinu.

Hinrik Ingi var á fyrri hluta síðasta árs úrskurðaður í gæsluvarðhald í tæpan mánuð grunaður um frelsissviptingu, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, hótanir og eignaspjöll. Samkvæmt heimildum DV mun það mál fljótlega vera tekið fyrir hjá dómsstólum.

Hinrik Ingi hefur vakið athygli undanfarin ár vegna afreka sinna í Crossfit-íþróttinni.  Árið 2019 hafði hann unnið sér sæti á heimsleikunum í Crossfit með frammistöðu sinni á Reykjavík Crossfit Championship móti en féll síðan á lyfjaprófi þegar tvö ólögleg efni fundust í sýni hans. Hinrik Ingi neitaði sök og gaf út yfirlýsingu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu.

Hinrik Ingi Óskarsson

„Ég hef aldrei notað ólögleg efni og þess vegna höfum ég og mitt teymi áfrýjað úrskurðinum og við höldum áfram að leita svara,“ skrifaði Hinrik Ingi við það tilefni.

Á svör hans var hins vegar ekki hlustað og hann var úrskuraður í fjögurra ára bann frá keppni í Crossfit.

 

Hér fyrir neðan sést myndbandið sem um ræðir:

Sparkar í glugga bíls á Reykjanesbrautinni.mov from DV Sjónvarp on Vimeo.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun