fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fókus

Hjón á áttræðisaldri ósammála um sóttvarnaraðgerðir – „Mamma er eiginlega orðin hrædd við pabba“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 22. nóvember 2020 20:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda hefur áhyggjur af velferð foreldra sinna.

Kristín Tómasdóttir

Sæl Kristín. Foreldrar mínir eru á áttræðisaldri, búa saman í sinni eigin íbúð og eru mjög hraust og sjálfstæð. Síðan COVID skall á hafa þau verið meira og minna í sjálfskipaðri sóttkví. Þau eru bæði skíthrædd við veiruna en hafa afar misjafna sýn á hvaða aðgerðir eru nauðsynlegar til þess að forðast hana.

Þetta er farið að valda mikilli togstreitu á milli þeirra og mamma er eiginlega orðin hrædd við pabba því henni finnst hann ekki passa sig á „réttan“ hátt. Pabbi upplifir að mamma haldi sér í gíslingu, og sé að reyna að pakkað þeim inn í bómull. Ég stend á milli þeirra, reyni að malda í móinn en ég á mjög erfitt með að taka afstöðu eða stilla til friðar. Hvað myndir þú gera í svipaðri aðstöðu?

 

Gott að ræða stöðuna

Sæl. Takk fyrir góða spurningu sem er í góðum takti við þessa undarlegu tíma. Þú spyrð hvernig ég myndi bregðast við og ég hlæ nú bara að því. Mín viðbrögð eru aldeilis ekki alltaf besta lausnin enda þekki ég ekki foreldra þína og kann þar af leiðandi ekki vel á þau. Þú aftur á móti ert sérfræðingur í þeim og þau bjargráð sem þú hefur verið að vinna með eru pottþétt að skila einhverjum árangri. Flest gerum við það sem er bærilegast í óbærilegum aðstæðum svo þú mátt alveg klappa þér á bakið fyrir vel unnin störf til þessa.

Samtal er þó yfirleitt alltaf af hinu góða. Hefur þú rætt við foreldra þína um líðan þína í þessu öllu saman? Að þú upplifir þig á milli þeirra og að þú hafir áhyggjur af þeim og togstreitunni á milli þeirra vegna COVID? Mögulega eru þau að upplifa stöðuna öðruvísi og þá er áhugavert að heyra þeirra sýn.

Fá utanaðkomandi aðstoð

Fjölskyldur eru samsettar úr mörgum kerfum. Foreldrar þínir eru kerfi, þú og mamma þín eruð mæðgnakerfi, þú og pabbi þinn eigið feðginakerfi. Mögulega áttu systkini og þá tilheyrið þið systkinakerfinu og þar fram eftir götunum. Mörkin milli þessara kerfa þurfa að vera skýr og það fyrsta sem ég hnýt um út frá spurningu þinni er að mögulega er þetta mál sem þarf að leysast án þinnar aðstoðar í foreldrakerfinu. Við erum alltaf börn foreldra okkar þó við séum orðin fullorðin og erfitt að breyta því í hlutverk uppalanda eða ráðgjafa. Í tengslum við COVID-hræðslu foreldra þinna ert þú komin í annað hlutverk, það er hlutverk sáttasemjara, nokkuð sem getur jafnvel bara flækt málin.

 

Mér dettur í hug hvort það gæti reynst ykkur öllum vel að fá utan að komandi aðstoð, til dæmis hjúkrunarfræðing frá heilsugæslunni, sem getur farið í gegnum sóttvarnir foreldra þinna með þeim. Þau virðist greina á um hvernig forðast skuli veiruna og þá gæti sérfræðingur á því sviði komið að betri notum en þú.

Óvissa skapar kvíða

Nú, annað sem gæti verið hjálplegt og það er að meta muninn á kvíðahegðun og sóttvörnum. Einnig gæti verið ráð að skoða hvort þau þurfi jafnvel aðstoð við kvíða fremur en sóttvarnir? Óvissa skapar kvíða hjá fólki og ef það er eitthvað sem COVID framkallar þá er það einmitt óvissa. Aðstæður foreldra þinna hljóma þannig að móðir þín sé að reyna að hafa stjórn á aðstæðum og skapa þannig fyrirsjáanleika sem dregur úr kvíða. Pabbi þinn upplifir þessa sömu stjórnun móður þinnar sem gíslingu. Það getur reynst vel að hjálpa foreldrum þínum að skilja hvað liggur að baki upplifun þeirra. Ef pabbi skilur að mamma er kvíðin og mamma skilur að pabbi er með innilokunarkennd þá gæti kannski skapast meira og gagnkvæmara umburðarlyndi.

Við getum verið sammála um að þetta eru undarlegir tímar og þeir kalla á undarlega hegðun og undarlega togstreitu milli fólks. Mikið vona ég að þetta fari að líða hjá en á meðan við bíðum þá er afar skiljanlegt að eldri hjón séu áhyggjufull. Við leysum það ekki með einföldum hætti en hlustun, stuðningur og skilningur getur þó gert kraftaverk fram að bóluefni. Mikið eru foreldrar þínir heppnir að eiga þig að þangað til. Gangi ykkur sem allra best.

 

Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com.

Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Silva aftur heim
Fókus
Í gær

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra

Einar Ágúst þurfti að endurskoða líf sitt eftir að hafa greinst með alvarleg veikindi í fyrra
Fókus
Í gær

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“

„Ég hugsaði um að draga mig út þegar stríðið á Gaza braust út en á sama tíma vildi ég taka pláss og nota röddina mína“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn
Fókus
Fyrir 2 dögum

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans

TikTok-stjarnan lést á afmælisdegi kærastans
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar

Sjónvarpssería um ævintýralegan feril Jósafats Arngrímssonar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“

Katrín og Vilhjálmur að „ganga í gegnum helvíti“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“

Britney rýfur þögnina eftir meint hörkurifrildi hennar og kærastans – „Ég veit að mamma mín tengist þessu!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“

Háklassa vændiskona fékk 650 þúsund krónur fyrir fjögurra tíma vinnu – „Ég myndi aldrei mæla með þessu starfi fyrir einhvern“