Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að til skoðunar sé að nefndin fái heimild til að komast að sjálfstæðri, efnislegri niðurstöður í einstökum málum en samkvæmt núverandi reglum um valdsvið nefndarinnar er ekki gert ráð fyrir að hún fjalli efnislega um mál.
Hlutverk hennar er að vísa málum til afgreiðslu hjá réttum yfirvöldum og tryggja að þau séu skráð með fullnægjandi hætti.
Einnig er fyrirhugað að lögfesta starfsemi lögregluráðs og að ákvæði um valdbeitingu og meðferð valdbeitingartækja og skotvopna verði sett í lögreglulög.