fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Pressan

„Ekki kjósa morðingja“

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 20. ágúst 2020 07:00

Donald Trump fyrrum Bandaríkjaforseti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollywoodstjarnan Sharon Stone lætur nú að sér kveða í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum sem fara fram í byrjun nóvember. Hún sakar Donald Trump, sitjandi forseta, um að bera ábyrgð á dauða ömmu hennar.

Á upptökum, sem voru birtar á Instagram og YouTube, segir Stone, sem er greinilega mjög þreytt, áhyggjufull og óförðuð, að kórónuveiran hafi farið illa með fjölskyldu hennar í Montana. Í upptökunni ræðst hún harkalega á viðbrögð Trump og stjórnvalda við heimsfaraldri kórónuveirunnar.

„Þeir halda áfram að segja að hættan sé lítil og að maður deyi kannski ekki. En í fjölskyldunni minni lést amma mín af völdum COVID-19, guðmóðir mín er dáin og systir mín og maðurinn hennar berjast fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi og systir mín hefur það ekki gott.“

Hún sakar yfirvöld um að hafa gert mistök og segir að í Montana sé ekki hægt að fara í sýnatöku nema maður sé með einkenni smits. Niðurstaðan komi svo ekki fyrr en fimm dögum síðar.

Stone segir að þetta hafi valdið því að móðir hennar, sem er hjartveik og hafi fengið tvö hjartaáföll á síðustu fimm mánuðum, hafi ekki fengið að fara í sýnatöku því hún hafi ekki verið með einkenni kórónuveirusmits.

Þörf fyrir kvenleiðtoga

Hún segir að hjúkrunarfræðingar, sem hætta lífi sínu til að bjarga öðrum, geti heldur ekki farið í sýnatöku því kerfið ráði ekki við það. Hún saka jafnframt þá, sem neita að bera andlitsgrímur, um að stefna lífi fólks í hættu.

„Fólk deyr og berst fyrir lífi sínu því það eru ekkert nema lygar. Það eina, sem getur breytt stöðunni, er að kjósa Joe Biden og Kamala Harris. Með konur við stjórnvölinn munum við berjast fyrir fjölskyldur okkar og sjá til þess að allir geti farið í sýnatöku. Einu löndin sem hafa staðið sig vel í heimsfaraldrinum eru lönd þar sem leiðtogarnir eru konur.“

Hún lýkur orðum sínum á að hvetja fólk til að kjósa, svo lengi sem það kýs ekki Donald Trump.

„Verið svo góð að kjósa. En hvað sem þú gerir, ekki kjósa morðingja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Enn einn Snapchat-perrinn
Pressan
Í gær

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída
Pressan
Fyrir 3 dögum

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár

Er þetta skrýtnasti raunveruleikaþáttur sögunnar? – Þurfti að vera nakinn og lokaður inni í meira en ár
Pressan
Fyrir 3 dögum

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin

Harmleikur í Svíþjóð – Tvö börn fundust látin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva

Tæplega helmingur kínverskra stórborga er að sökkva
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Fyrir 4 dögum

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu