fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Pressan
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 07:30

Flugeldasýning á þjóðhátíðardegi Singapore. Mynd: Chensiyuan - Wikimedia Commons.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungur maður frá Frakklandi á yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi í Singapore fyrir að sleikja rör úr sjálfsala og koma því svo aftur fyrir í þessum sama sjálfsala.

Singapore er þekkt fyrir að þar í landi er tekið hart á hvers kyns sóðaskap og óspektum.

Atvikið átti sér stað í verslunarmiðstöð í síðasta mánuði. Átján ára gamall piltur frá Frakklandi er sagður hafa tekið rör úr sjálfsala, þar sem hægt er að kaupa appelsínusafa, sleikt það og sett það svo aftur á sinn stað.

Pilturinn, Didier Gaspard Owen Maximilien, hefur verið ákærður fyrir óspektir á almannafæri en við því liggur allt að þriggja mánaða fangelsi, og spellvirki en refsingin fyrir slíkt getur verið allt að tveggja ára fangelsi.

Pilturinn er sagður hafa tekið athæfið upp á myndband og birt það síðan á samfélagsmiðlum en samkvæmt fjölmiðlum í Singapore varð myndbandið til þess að lögreglan þar í landi tók málið til rannsóknar. Fyrirtækið sem sér um sjálfsalann þurfti í kjölfarið að taka öll rör sem voru í sjálfsalanum, alls 500 talsins, henda þeim og setja ný í staðinn.

Pilturinn býr í Singapore en hann er nemandi í þarlendu útibúi fransks skóla, ESSEC Business School. Honum mun hafa verið boðið að vera látinn laus úr fangelsi gegn tryggingu, á meðan málið er til meðferðar í réttarkerfinu, en hann á að koma næst fyrir dóm eftir um þrjár vikur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin

Dularfull dauðsföll vísindamanna ekki bara bundin við Bandaríkin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést

Foreldrar sakaðir um gáleysi eftir að sonur þeirra kastaði styttu fram af svölum – þrítug kona lést