fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Pressan
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrir hafa nú verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á trúarsamtökum í bænum Crewe á Bretlandi. Samtökin kallast Ahmadi-trú friðar og ljóss (e. Ahmadi Religion of Peace and Light) en meint brot munu vera kynferðisbrot, nauðungarhjónabönd og nútímaþrælahald gegn konu.

Lögreglu var gert viðvart um málið í mars en meint brot munu hafa átt sér stað árið 2023. Þolandi er kona sem var meðlimur í samtökunum á þeim tíma.

Lögregla réðst í morgun í umfangsmiklar aðgerðir rúmlega 500 lögreglumanna sem framkvæmdu þrjár húsleitir í bænum, þar með talið í húsnæði sem áður var rekið sem munaðarleysingjahæli en þjónar nú hlutverki sem höfuðstöðvar samtakanna og á sjúkrahúsi. Aðgerðirnar eru afrakstur yfirgripsmikillar rannsóknar á meintum brotum.

„Þó svo að þau handteknu séu meðlimir í samtökunum vil ég koma því skýrt á framfæri að þessi rannsókn beinist ekki gegn trúarbrögðunum, þetta er rannsókn sem varðar alvarlegar ásakanir sem við höfum verið upplýst um. Við tökum allar tilkynningar um kynferðisbrot alvarlega og erum staðráðin í því að gera allt sem í okkar valdi stendur til að réttlætið fái fram að ganga,“ sagði lögreglustjórinn Gareth Wrigley við fjölmiðla en hann tekur fram að íbúum bæjarins stafi enginn hætta af málinu.

Konan sem hafði samband við lögreglu hefur nú yfirgefið samtökin og er flutt til Írlands. Hún segist hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í höfuðstöðvum samtakanna. Þeir handteknur eru allir karlmenn og koma frá Bandaríkjunum, Mexíkó, Bretlandi, Þýskalandi og Spáni.

Hvað er Ahmadi-trú?

Ahmadi-trú friðar og ljóss er trú sem á rætur að rekja til sjía-íslam. Leiðtogi hreyfingarinnar heitir Abdullah Hashem sem er Bandaríkjamaður með rætur til Egyptalands. Hann er talinn af samtökunum vera útvalinn af spámanninum Múhammad. Þeir sem fylgja trúnni eru ekki múslimar í hefðbundnum skilningi. Þeim er ekki skylt að fara með bænir á föstudögum, þeir mega drekka áfengi og hafa umburðarlyndi fyrir hinsegin samfélaginu. Trúarlegur fatnaður á borð við hijab er ekki skylda. Fylgjendur trúarinnar hafa orðið fyrir ofsóknum frá strangtrúuðum múslimum í fjölda landa út af því frjálslyndi sem ahmadi-trúin boðar. Hashem hefur til dæmis haldið því fram að fyrrum Bandaríkjaforseti, George Washington, hafi í raun verið maður að nafni Adam Weishaupt sem stofnaði Illuminati. Að sögn The Guardian felur trú þessi í sér blöndu af íslam ásamt þekktum samsæriskenningum á borð við samsæriskenningunumna um Illuminati og að geimverur séu að stjórna forsetum Bandaríkjanna. Árið 2023 voru ahmadi-samtökin í Svíþjóð sökuð um að hafa sviksamlega komið á fót þremur fyrirtækjum til að skapa gervistörf til að liðka fyrir dvalarleyfi innflytjenda.

Höfuðstöðvar trúarsamtakanna eru í Bretlandi en þar mun Hashem vera búsettur. Iðkendur trúarinnar trúa því að Hashem hafi lækningamátt og að hann geti látið tunglið hverfa. Að sögn The Guardian eru um 56 börn búsett í höfuðstöðvunum í Crewe. Þau sækja ekki hefðbundinn skóla heldur fá heimakennslu frá samtökunum. Höfuðstöðvarnar voru áður í Svíþjóð en voru fluttar til Bretlands árið 2021 eftir að innflytjendaeftirlitið hóf að rannsaka samtökin og brottvísaði fjölda meðlima í kjölfarið. Munu bresk yfirvöld, líkt og þau sænsku, vera að rannsaka hvort Ahmadi-samtökin séu að stuðla að sviksamlegri útgáfu atvinnuleyfa.

Independent greinir frá

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“