fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
Pressan

„Atvinnulausar“ flugvélar geta endað sem brotajárn

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 12. maí 2020 20:31

Vélar frá Lufthansa eru á jörðu niðri þessa dagana. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um allan heim standa flugvélar á flugvöllum því nánast allt flug liggur niðri. Talið er að um 17.000 flugvélar standi nú á jörðu niðri verkefnalausar og ekki er vitað hvenær þær taka næst á loft.  Fljótlega verður erfitt að finna staði þar sem vélarnar eiga ekki á hættu að nánast daga uppi og verða að brotajárni.

Í umfjöllun Dagens Nyheter um málið kemur fram að nú sé orðið erfitt að finna langtímastæði fyrir flugvélar. Singapore Airlines greip til dæmis nýlega til þess ráðs að fljúga fjórum Airbus A380 þotum sínum, það eru stærstu farþegaflugvélar heims, út í áströlsku Simpson eyðimörkina til að geyma þær þar. Af 200 flugvélum félagsins eru aðeins 10 í notkun þessa dagana.

Fleiri flugfélög hafa einnig gripið til þess ráðs að fljúga vélum sínum til Ástralíu til að geyma þær í þurrum eyðimörkunum.  Tímaritið Traveller segir að flugvélar, að verðmæti sem nemur um 700 milljörðum íslenskra króna, standi nú í miðhluta Ástralíu, séu þar í geymslu.

Það eru auðvitað til mörg hundruð flugvellir og aðrir staðir til að geyma flugvélar á þegar þær eru ekki í notkun í langan tíma en eyðimerkur henta einna best vegna þess hversu þurrt loftið þar er sem gerir að verkum að flugvélarnar verða ekki fyrir rakaskemmdum.

Stærstu geymslusvæði flugvéla í Bandaríkjunum eru til dæmis í Victorville í Kaliforníu og Roswell í Nýju Mexíkó. Þar eru nú um 400 vélar á hvorum stað. Það er ekki ókeypis að geyma vélarnar því daggjöld eru innheimt.

Ekki er að sögn hægt að geyma vélarnar lengur en í tvö ár án þess að þær byrji að eyðileggjast og er þá miðað við að viðhaldi sé sinnt á meðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Játaði til að vernda kærustuna sem svo sveik hana – „Þetta var rosaleg ást, er það ekki? Hún var banvæn“

Játaði til að vernda kærustuna sem svo sveik hana – „Þetta var rosaleg ást, er það ekki? Hún var banvæn“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna

Sá eftir glæpnum áratugum síðar og skilaði hinum látna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rifjaði upp sögu af því þegar Andrés keypti sér 40 vændiskonur á fjórum dögum í Taílandi

Rifjaði upp sögu af því þegar Andrés keypti sér 40 vændiskonur á fjórum dögum í Taílandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ein helsta stuðningskona Trump á þingi sökuð um að vera vinstrisinnuð

Ein helsta stuðningskona Trump á þingi sökuð um að vera vinstrisinnuð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Trump harðlega gagnrýndur fyrir framkvæmd og útfærslu viðhafnarsalarins – Rak nefndina sem átti að skila umsögn

Trump harðlega gagnrýndur fyrir framkvæmd og útfærslu viðhafnarsalarins – Rak nefndina sem átti að skila umsögn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tekinn af lífi fyrir hrottalegt morð á nágranna sínum – Svona leit síðasta máltíðin hans út

Tekinn af lífi fyrir hrottalegt morð á nágranna sínum – Svona leit síðasta máltíðin hans út