Blaðið er gefið út í Santa Barbara í Kaliforníu. Það var eigandi þess og útgefandi, Wendy McCaw, sem skrifaði leiðarann. Í honum sakaði hún demókrata um að nota heimsfaraldurinn til að ná pólitískum markmiðum sínum fram og líkti fyrirmælum um að fólk eigi að halda sig heima við ástandið í Þýskalandi á valdatíma nasista.
„Frelsi okkar hefur verið tekið af okkur vegna hvers, veiru? Hugleiðið það.“
Skrifaði hún í leiðaranum sem bar yfirskriftina „Við búum við harðstjórn.“
„Ef þetta land kemst í þessa stöðu vegna veiru, hvað þarf þá til að breyta okkur í Sovétríkin eða Þýskaland nasista? Við erum ekki svo fjarri því nú þegar við þurfum að standa í röð til að komast inn í stórverslanir.“
Skrifaði hún einnig.
Í athugasemd með leiðaranum kemur fram að hann sé eingöngu skoðun þess sem hann ritar og endurspegli ekki endilega skoðanir starfsmanna blaðsins.
Á laugardaginn skýrði Santa Barbara Independent frá því að Masuda hefði hætt störfum á föstudaginn en hann hafði ritstýrt Santa Barbara News-Press í 18 mánuði. Ástæðan er að sögn leiðarinn umræddi.
Wendy McCaw hefur lengi verið umdeild innan fjölmiðlaheimsins í Kaliforníu. Hún keypti Santa Barbara News-Press árið 2000. Í eigendatíð hennar hefur blaðið tekið harða afstöðu í mörgum málum. Það er til dæmis á móti þeirri hefð að kalkúnn sé snæddur á þakkargjörðarhátíðinni. Blaðið er einnig á móti því að verkafólki séu tryggð lágmarkslaun.