fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Karl hjólar í Sigmund Erni: „Ljóslifandi dæmi um hvernig karlar eru körlum verstir“

Fókus
Mánudaginn 21. október 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baggalúturinn og fyrrverandi borgarfulltrúinn Karl Sigurðsson, vekur athygli á því á Twitter hvernig Sigmundur Ernir Rúnarsson breiddi á nokkuð grófan hátt úr sér í þættinum Kappsmál.

Karl birti mynd þar sem Sigmundur er búinn að taka yfir sameiginlegt púlt hans og Bryndísar Björgvinsdóttur.

Karl segir þetta svokallað manspreading, sem hefur verið þýtt sem karlbreiðsla. Hugtakið snýst um meintan ósið sumra karla að breiða úr sér, oftast í samhengi við almenningssamgöngur.

Femínistar skemmta sér yfir þessu á Twitter og setja í samhengi við mál síðustu viku en þeim finnst of mikið gert úr gagnrýni þeirra á orðalag Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem var sögð nota karllæga orðanotkun.

Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, ákallar DV á Twitter og skrifar: „DV er ekkert að fjalla um þessa svakalegu árás Kalla á Sigmund Erni. Hvernig skyldi standa á því?“

Elísabet Ýr Atladóttir er kaldhæðin og skrifar: „Ótrúleg ráðgáta. Ljóslifandi dæmi um hvernig karlar eru körlum verstir og enginn kippir sér upp við það. Mér finnst karlasamstaðan ekki til fyrirmyndar, er bara eðlilegt að fordæma og ráðast á mann sem er í mesta sakleysi að vinna vinnuna sína?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 4 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu