Við sögðum frá því fyrir stuttu að vefsíðan Delish væri búin að taka saman lista yfir þá ávexti sem innihalda fæstu kolvetnin. Nú er vefsíðan einnig búin að taka saman lista yfir það grænmeti sem inniheldur fæst kolvetni.
Útreikningar Delish byggjast á því sem kallað er „net carbs“, ekki heildarkolvetnafjölda. „Net carbs“ þýðir kolvetni mínus trefjar, þannig að trefjamagn grænmetis er dregið frá kolvetnafjöldanum.
Eins og sjá má á skýringarmyndinni hér fyrir neðan eru fæstu kolvetnin í spínati, svo í avókadó, aspas og káli. Því næst kemur grænmeti eins og agúrka, eggaldin, blómkál og grænkál, sem og grænar baunir, brokkolí og rauð paprika.
Sjáið skýringarmyndina hér fyrir neðan: