fbpx
Þriðjudagur 14.október 2025
Fókus

Þetta er vinsælasta leitarorð Íslendinga á Pornhub árið 2018

Fókus
Föstudaginn 21. desember 2018 09:42

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klámsíðan Pornhub er í hópi vinsælustu vefsíðna heims þó að fáir viðurkenni opinberlega að þeir skoði efnið, rúmlega 4,8 milljónir klámmyndbanda, sem þar er í boði.  Alls voru heimsóknir á síðuna meira en 33 milljarðar á síðasta ári sem þýðir að daglegar heimsóknir voru yfir 90 milljónir á heimsvísu.

Í lok hvers árs tekur Pornhub saman áhugaverða tölfræði ársins fyrir heiminn og sökk ritstjórn DV það lágt að óska eftir sérstöku yfirliti fyrir Ísland. Starfsmenn klámsíðunnar voru boðnir og búnir til þess og sendu skýrslu til blaðsins.

Íslendingar leita í ræturnar

Það leitarorð sem Íslendingar leita mest að á Pornhub bendir til þess að Íslendingar séu heimakærir með afbrigðum. Það er einfaldlega orðið „Iceland“ og því má beinlínis fullyrða að Íslendingar séu einstaklega áhugasamir um bólfarir samlanda sinna. Heimildir herma að lítið sé í boði sé leitað eftir því orði en ritstjórn DV myndi að sjálfsögðu aldrei leggjast svo lágt að leita. Þá er orðið „Icelandic“ í sjöunda sæti og sjálfreist níðstöng íslenskra karlmanna og lesbía nær svo hámarki því „Icelandic girl“ er í áttunda sæti.

„Lesbian“ er næstvinsælasta leitarorð Íslendinga og í þriðja sæti er „Fortnite“ sem vekur upp grunsemdir um óhóflega klámnotkun íslenskra ungmenna. Þá vekur athygli að leitarorðið „trans“ rýkur upp listann hjá landanum en tíðni leitar jókst um 411% á árinu.  Til samanburðar hafði heimurinn lítinn áhuga á íslensku klámefni en vinsælasta leitarorð heimsins var „Lesbian“ sem er í takt við áhuga Íslendinga. Í öðru sæti er „hentai“, „milf“ í þriðja sæti, „stepmom“ í því fjórða og „japanese“ í fimmta sæti sem er að einhverju leyti á skjön við áhuga Íslendinga.

Vinsælustu leitarorð Íslendinga á Pornhub árinu:

  1. Iceland
  2. Lesbian
  3. Fortnite
  4. Anal
  5. Milf
  6. Stepmom
  7. Icelandic
  8. Icelandic girl
  9. Trans
  10. Gangbang
  11. Squirt
  12. Tinder
Vinsælustu leitarorð Íslendinga

Vinsælustu leitarorð ársins á Pornhub:

  1. Lesbian
  2. Hentai
  3. Milf
  4. Step mom
  5. Japanese
  6. Mom
  7. Teen
  8. Asian
  9. Massage
  10. Korean
  11. Ebony
  12. Anal

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Nýjar vendingar í skilnaðardrama ársins

Nýjar vendingar í skilnaðardrama ársins
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram – Í sjokki hvað rassabuxurnar virka vel

Vikan á Instagram – Í sjokki hvað rassabuxurnar virka vel
Fókus
Í gær

Kótilettukvöld Samhjálpar – Fagna árangri fjölda fólks við að ná bata frá fíknisjúkdómnum

Kótilettukvöld Samhjálpar – Fagna árangri fjölda fólks við að ná bata frá fíknisjúkdómnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tvö íslensk söfn valin á lista þeirra undarlegustu í Evrópu – Enduðu í fyrsta og fjórða sæti

Tvö íslensk söfn valin á lista þeirra undarlegustu í Evrópu – Enduðu í fyrsta og fjórða sæti
Fókus
Fyrir 3 dögum

Game of Thrones stjarna var svipt sjálfræði eftir að hafa verið tæld í sértrúarsöfnuð

Game of Thrones stjarna var svipt sjálfræði eftir að hafa verið tæld í sértrúarsöfnuð
Fókus
Fyrir 3 dögum

Norðanvindurinn er dystópísk fantasía með krydduðu, ástarsögulegu ívafi

Norðanvindurinn er dystópísk fantasía með krydduðu, ástarsögulegu ívafi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Unga tónlistarkonan kyndir undir orðróm um ástarsamband með Keith Urban

Unga tónlistarkonan kyndir undir orðróm um ástarsamband með Keith Urban
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicole Kidman opnar sig um erfiðleika og „óbærilegan sársauka“ í nýju viðtali

Nicole Kidman opnar sig um erfiðleika og „óbærilegan sársauka“ í nýju viðtali