fbpx
Föstudagur 03.maí 2024
Fókus

Petru og Braga Valdimar greinir á um hvaða orð á að nota yfir þennan algenga hlut

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 17. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég sat með fólki á veitingastað á dögunum sem er uppalið hér fyrir sunnan og við vorum að ræða hitt og þetta. Ég sagði orðin „eldhúsbekkur“ og „bekkjartuska“ í einhverri setningunni og fólkið bara hváði,“ segir Petra Sif Sigmarsdóttir, frá Reyðarfirði, en hún skrifaði um þessa upplifun sína á Facebook-síðu sinni og uppskar mikil viðbrögð. Í viðtali við Austurfrétt segir Petra Sif frá atvikinu og rifjar upp fleiri orð sem virðast vera að að falla í gleymskunnar dá.

Petra er fædd og uppalin á Reyðarfirði og bjó þar til tvítugs þegar hún hélt til höfuðborgarinnar í háskólanám. Þar hefur hún búið síðan, eða undanfarin 17 ár. Eftir ferðina á veitingahúsið spurði Petra vinnufélaga sína út í sömu orð.

Fæstir vissu um hvað ég var að tala og höfðu ekki heyrt orðin áður. Ég varð svo ótrúlega hissa því fyrir mér eru þessi orð jafn eðlileg eins og að tala um hús og bíl. Flestir sem ég spurði sögðust nota orðið borð eða eldhúsborð í staðinn fyrir eldhúsbekkur og borðtuska í stað bekkjartuska.

Ég setti svo færslu um málið á Facebook-síðu mína sem fékk mikil viðbrögð, sérstaklega frá fólki sem er alið upp fyrir austan, hefur einhverntímann búið þar eða er í sambúð með Austfirðingum sem þekkja orðin. Fleiri sögðust þó nota orðið eldhúsbekkur heldur en bekkjartuska af þeim sem komu með athugasemd við stöðufærsluna.

Öll mín stórfjölskylda er þó að mestu leyti enn fyrir austan þannig að ég hef mikil tengsl þangað og fer mikið austur. Eftir að ég flutti suður hef ég nokkrum sinnum lent í því að nota orð sem höfuðborgarbúar hafa aldrei nokkurn tímann heyrt. Fyrst eftir að ég flutti suður og fór að vinna við umönnun notaði ég orðið brók óspart. Það féll ekki í góðan jarðveg og var ég fljót að losa mig við það og nota nærbuxur í staðinn. Fólk hefur spurt mig hvort ég sé níræð þegar ég tala um sterka mola, hér talar fólk um sterkan brjóstsykur,“ segir Petra og hlær.

Aldrei heyrt orðið bekkjartuska
Austurfrétt leitaði álits hjá textahöfundinum Braga Valdimari Skúlasyni, sem er einna þekktastur fyrir að vera umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins Orðbragðs.

Eldhúsbekkur er ekki orð sem notað er hér á höfuðborgarsvæðinu. Sjálfur er ég að vestan og þar er talað um eldhúsborð, bæði fyrir svæðið í kringum eldavélina og borðið sem borðað er við. Þegar ég hugsa út í það er það ansi fátæklegt og það skapar viss vandræði þegar maður er beðinn um að leggja eitthvað á eldhúsborðið.

Varðandi orðið eldhúsbekkur, þá tel ég að uppruni þess vísi til trébekksins sem fólk sat á við eldhúsborðið, en slíkir eru sjaldséðir í eldhúsum í dag. Það vantar kannski bara orð yfir það sem þið fyrir austan kallið eldhúsbekk.

Bekkjartuska er hins vegar orð sem ég hef aldrei heyrt fyrr en núna, nema þá kannski yfir þreytulegan nemanda, sem er þá hálfgerð bekkjartuska,“ segir Bragi.

Eru mismunandi mállýskur hverfandi á Íslandi í dag? „Já, bæði mállýskur og öll sérviska. Það þykir mér miður. Mér finnst að mætti vera miklu meiri munur milli landshluta því allt svona er svo rosalega skemmtilegt. Fólk á það til að æsast mjög auðveldlega þegar svona nokkuð berst í dag.“

„Ég vil alls ekki að eldhúsbekkurinn hverfi“
Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur á Ríkisútvarpinu, talar sjálf um eldhúsborð, ekki eldhúsbekk.

„Þetta er það sem er svo skemmtilegt, í raun alveg frábært að það skuli vera til þessi tvö orð sem við tökumst svona á um. Ég vil alls ekki að eldhúsbekkurinn hverfi þó svo ég noti hann ekki sjálf, heldur fyrir alla muni að fólk haldi áfram að nota eldhúsbekk. Mér finnst svo mikilvægt að við höldum í þessa fjölbreytni í málinu, sem er því miður að minnka.“

Anna Sigríður tekur undir með Braga Valdimar varðandi bekkjartuskuna. „Ég kannast ekki við það, heldur frekar þá bekkjarrýja eða bekkjardrusla. Bæði hef ég heyrt það á Norðurlandi og Vesturlandi, þá jafnvel bara „drusluna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ragnhildur kemur Baldri til varnar – „Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“

Ragnhildur kemur Baldri til varnar – „Ætlum við líka að hamra á frambjóðendum sem hafa farið inn á strippstaði?“
Fókus
Í gær

Gypsy Rose frumsýndi nýtt nef og ljóst hár eftir fegrunaraðgerð

Gypsy Rose frumsýndi nýtt nef og ljóst hár eftir fegrunaraðgerð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aníta hætti að drekka áfengi og finnur strax mikinn mun

Aníta hætti að drekka áfengi og finnur strax mikinn mun
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Um tíma átti ég erfitt með að kaupa mér maskara því ég eyddi svo miklum pening í maníu“

„Um tíma átti ég erfitt með að kaupa mér maskara því ég eyddi svo miklum pening í maníu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Móeiður og Hörður héldu glæsilegt barnaafmæli í anda Kardashian-fjölskyldunnar

Móeiður og Hörður héldu glæsilegt barnaafmæli í anda Kardashian-fjölskyldunnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hvetur fólk til að skipta út þessu orði: „Hættum að afsaka okkur í sífellu“

Hvetur fólk til að skipta út þessu orði: „Hættum að afsaka okkur í sífellu“