fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Fjölmenni í 10 ára afmæli UNICEF og Te & Kaffi – 10 daga söfnunarátak

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 22. október 2018 10:30

Það var mikið fjör í afmælinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margt var um manninn í Smáralindinni á laugardag þegar UNICEF á Íslandi og Te & Kaffi blésu til afmælisveislu til að fagna 10 ára farsælu samstarfi. Tveggja metra afmæliskaka kláraðist og mikill fögnuður braust út þegar Páll Óskar steig á svið. Steindór Gunnar fangaði stemninguna á myndum.

Anna Margrét frá UNICEF og Guðmundur Halldórsson framkæmdastjóri Te & Kaffi.

Te & Kaffi hefur verið ómetanlegur stuðningsaðili UNICEF á Íslandi frá árinu 2008 og safnað yfir 40 milljónum króna fyrir börn í neyð. Afmælinu og árangrinum var fagnað með afmælisveislu í Smáralindinni á laugardag. Páll Óskar, sem hefur kynnst starfi UNICEF í Síerra Leóne með eigin augum, steig á svið og kaka og kaffi voru í boði fyrir afmælisgesti.

Páll Óskar skemmti afmælisgestum.

Afmæli og árangri fagnað í Smáralindinni

„Mér þykir afar vænt um samstarfið okkar. Ég hef notið þeirrar gæfu að fá að fylgjast með þessu samstarfi vaxa frá fyrsta degi, sem hefur verið virkilega gefandi. Á þessum tíu árum höfum við náð að hjálpa börnum í neyð og ég er gríðarlega stoltur af starfsfólki kaffihúsanna fyrir þennan árangur.  Við erum hvergi nærri hætt heldur,“ segir Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri Te & Kaffi.

Boðið var upp á kaffi og köku.

Framlögin frá kaffihúsunum og í gegnum sölu á kaffi til fyrirtækja hafa nýst í að tryggja börnum í Kólumbíu menntun, bregðast við ebólufaraldri í Vestur-Afríku, hjálpa börnum í Suður-Súdan þegar landið var á barmi hungursneyðar og útvega bólusetningar gegn mænusótt.

„Þetta samstarf skiptir okkur miklu máli og hefur hjálpað hundruð þúsunda barna. Fyrir það vil ég þakka starfsfólki og viðskiptavinum Te & Kaffi sérstaklega,“ segir Steinunn Jakobsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.

Páll Óskar.

Te & Kaffi gefur næringarmjólk með kaffinu

Samhliða afmælinu hófu UNICEF og Te & Kaffi 10 daga söfnunarátak þar sem þemað er að bregðast við hungri í heiminum. Af hverjum seldum drykk dagana 19. – 29. október gefur Te & Kaffi andvirði 300 millilítra af næringarmjólk fyrir barn sem þjáist af bráðavannæringu og viðskiptavinum er boðið að gera það sama með því að bæta 66 krónum við bollann.

„Hungur og matvælaskortur í heiminum er því miður gífurlega alvarlegt vandamál og vannæring ógnar lífi barna víða. Við viljum leggja okkar af mörkum til að bregðast við því,“  segir Guðmundur.

Yfir 820 milljónir manns búa við hungur í dag, eða 1 af hverjum 9 í heiminum. Það er mesta hungur í heiminum í meira en áratug og neyðarástand vegna vannæringar hefur skapast víða um heim. UNICEF einsetur sér að ná til allra barna og veita börnum sem þjást af alvarlegri vannæringu viðeigandi meðferð,meðal annars með næringarmjólk og öðrum bætiefnum. Vannæring getur hljómað eins og óyfirstíganlegt vandamál en góðu fréttirnar eru þær að með réttri meðhöndlun ná langflest vannærð börn sér á einungis nokkrum vikum.

Auk þess sem söfnunarátakið fer fram á kaffihúsum Te & Kaffi er hægt að gefa næringarmjólk í gegnum vefverslun UNICEF á Íslandi hér.

Ljósmyndasýningin er einnig opin næstu 10 dagana í Smáralindinni.

Ljósmsyndasýning opnaði í Smáralindinni á laugardag.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur