fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Stefán skilur við Eistnaflug: Banaslysið 2010 breytti öllu

Foreldrar á heimavist – Kenndi sér um banaslys – 2017 erfitt ár – Nýtt líf á Hard Rock

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 20. janúar 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hátíðin Eistnaflug í Neskaupstað er fyrir löngu orðin að einum helsta hornsteini íslenskrar rokktónlistar. Fræg fyrir gott andrúmsloft og að ofbeldi sé ekki liðið. Íþróttakennarinn Stefán Magnússon kom hátíðinni á legg árið 2004 en hann hefur nú ákveðið að segja sig frá skipulagningunni. Kristinn hjá DV hitti Stefán á Hard Rock Café, þar sem hann er framkvæmdastjóri, og ræddi við hann um æskuárin, hátíðina og álagið sem var hætt að verða honum hollt.

Við setjumst niður í kjallaranum á Hard Rock við borð undir gítar frá sjálfum Dan Spitz úr Anthrax, sem er mjög viðeigandi. Stefán segir: „Tónlistin er mjög stór hluti af því hver ég er og það hefur alveg háð mér hversu sterkt afl tónlist er í mínu lífi. Þegar ég var að alast upp þoldi ég ekki þá tónlist sem var spiluð í útvarpinu. Ég segi það mjög einlægt að ég hataði lögin með Pálma Gunnars og þess háttar popp. En þegar ég heyrði fyrst í hljómsveitum á borð við Napalm Death, Dio, Slayer og Metallicu þá breyttist allt.“

Krakkarnir stofnuðu körfuboltadeild

Stefán er 41 árs og alinn upp í Hveragerði. Hann er elstur fjögurra systkina og foreldrar þeirra ráku gróðrarstöðina Grósku. Hann var sprækur sem barn og stundaði íþróttir grimmt. „Kannski var ég svona rosalegur A-maður. Auk íþróttanna var ég mjög virkur í félagslífinu og var farinn að skipuleggja ýmsa viðburði strax í grunnskóla.“

Fótbolti, handbolti og badminton voru hans ær og kýr þar til í tíunda bekk þegar hann og bekkjarbræður hans stofnuðu körfuboltadeild. „Á þessum tíma var enginn körfubolti í Hveragerði. Við, krakkarnir í gaggó, gengum í hús og söfnuðum áheitum til að setja upp körfur í íþróttahúsið og fengum okkur þjálfara.“ Eftir einn vetur var ákveðið að setja körfuboltadeildina inn í íþróttafélagið Hamar. „Þeir sáu að það var ekki hægt að láta einhverja krakka halda utan um þetta þannig að þetta frumkvæði okkar var tekið alla leið.“

Síðan þá hefur körfuknattleikur verið flaggskip Hamars. Kvennaliðið komst í úrslitakeppnina árið 2011 og karlaliðið hefur í tvígang komist í úrvalsdeild. Stefán spilaði með liðinu þegar það komst upp í fyrstu deildina en hætti þá. „Eftir á að hyggja hefði ég ekki átt að hætta. En ég var þá með barn á leiðinni og þetta hefði þýtt mikla fjarveru.“

Með ungbarn á heimavist

Stefán sagði þó ekki skilið við íþróttirnar því hann fór í Menntaskólann á Laugarvatni og svo í Íþróttakennaraskólann. Í menntaskólanum kynntist hann verðandi eiginkonu sinni, Hrefnu Hugosdóttur, hjúkrunar- og fjölskyldufræðingi, þegar hann var 19 ára. Hann segir að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn og sú ást hafi enst í 22 ár. Þau eiga tvö börn, Júlíus Óla, 19 ára, og Ragnheiði Maríu, 13 ára. Júlíus fæddist þegar Stefán og Hrefna voru enn á heimavist.

Hvernig var að eignast barn í heimavistarskóla?

„Það var svolítið sérstakt, bæði þegar Hrefna var ólétt og eftir að Júlíus fæddist. Eðlilega var mikið ónæði og partístand. Eftir að hann fæddist þurfti ég stundum að taka hann með mér í tíma og hann var skríðandi um skólastofuna.“ Hann segir samt að þau hafi aldrei fundið fyrir neinum fordómum verandi svo ungir foreldrar. Skólayfirvöldin gerðu allt til að gera þeim vistina með Júlíus sem þægilegasta. „Síðasta árið vorum við komin í séríbúð því það var ekki hægt að vera á vistinni með hann. Gleðin á staðnum var einfaldlega of mikil.“

„Síðasta árið vorum við komin í séríbúð því það var ekki hægt að vera á vistinni með hann. Gleðin á staðnum var einfaldlega of mikil.“

Ungur pabbi „Síðasta árið vorum við komin í séríbúð því það var ekki hægt að vera á vistinni með hann. Gleðin á staðnum var einfaldlega of mikil.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Fordæmalaus vöxtur

Tónlistin hefur verið samofin lífi Stefáns frá því hann var barn. Hann lærði á trommur í lúðrasveit og stofnaði svo ýmsar hljómsveitir með félögum sínum. Þekktust þeirra var pönkhljómsveitin Dys sem gaf út tvær plötur. Dys var þá hluti af lítilli en öflugri rokksenu sem kennd er við harðkjarna. Stefán er þó mun þekktari fyrir skipulagningu tónleika. Hann og Hrefna fluttu til Neskaupstaðar þar sem vantaði bæði íþróttakennara og hjúkrunarfræðing og bjuggu þar um skeið. Þar komu þau rokkhátíðinni Eistnaflugi á laggirnar árið 2004.

Hátíðin var smá í sniðum fyrstu árin og aðeins um 50 miðar seldir. Það voru mikil viðbrigði fyrir Stefán og Hrefnu að flytja austur og búa fjarri rokkglaumnum sem þau vildu ekki missa af. „Ég lét á þetta reyna og fékk 400 þúsund kall í styrk fyrir rútu frá menningarráði. Hljómsveitirnar komu og spiluðu einn dag og svo var partí heima hjá mér.“

Ákveðið var að halda hátíðina aftur næsta ár og svo koll af kolli. Hún stækkaði mjög hratt milli ára og árið 2010 voru gestirnir orðnir um 1.500 talsins. Stefán segir árið 2008 vissan vendipunkt. „Þarna komu guðirnir í HAM á svæðið. Þetta var líka árið þegar fyrsta erlenda bandið kom á hátíðina.“ Sífellt fjölgaði einnig í hópnum sem kom að skipulaginu. Meðal þeirra voru Guðný Thorarensen, Gísli Sigmundsson og Karl Óttar Pétursson.

Flestar hljómsveitirnar sem spila á Eistnaflugi eru íslenskar, bæði stór nöfn á borð við Skálmöld, Dimmu og Sólstafi, en einnig minna þekkt bönd sem eru að brjótast fram á sjónarsviðið. Risastór erlend rokkbönd hafa einnig stigið þar á svið. Má þar helst nefna Napalm Death, Meshuggah, Opeth, At the Gates og Cavalera-bræður. „Ég sagði það alltaf í gríni að ég myndi hætta þegar ég fengi Slayer til að koma … og það munaði engu nú í sumar. Þeir buðu mér dagsetningu en hún var á sama tíma og Secret Solstice.“

Banaslys breytti öllu

Árið 2010 voru tekin stór skref í að gera hátíðina fagmannlegri en áður, með betri aðstöðu, löggæslukostnaði og fleiru. Þá spilaði stór erlend hljómsveit í fyrsta skipti, Napalm Death, og áhuginn var gríðarlegur á hátíðinni. Stefán segir jafnframt að þetta hafi verið erfiðasta hátíðin þar sem ung kona lést af slysförum. „Þetta breytti öllu,“ segir Stefán og það er augljóst að það er erfitt fyrir hann að rifja þennan tíma upp.

Hugsaðir þú um að hætta?

„Já, Jesús minn. Ég skil enn þá ekki af hverju ég hætti ekki eftir þetta. Við fengum mikinn stuðning en þetta var rosalegt áfall fyrir alla sem tengjast Eistnaflugi, sama hvort um er að ræða hátíðahaldara, björgunarsveit og öryggisgæslu, heimamenn og svo auðvitað Eistnaflugsgesti, sem þekkjast margir hverjir mjög vel. Á þessum árum töluðum við um Eistnaflugsfjölskylduna.“

Stefán segist alla tíð hafa kennt sjálfum sér um slysið. „Þetta hefði ekki gerst ef ég hefði ekki verið að halda Eistnaflug. Ég hef aldrei getað sætt mig við þetta og sennilega er það eðlilegt. Maður hugsar oft til fjölskyldu hennar og vina. Það misstu margir mikið þarna og Eistnaflug varð aldrei eins fyrir mig eftir þetta, ekki fyrir mig. Þetta fyllti mann kvíða og það var sérstaklega erfitt að koma aftur ári seinna og árin þar á eftir. Ég drakk bara þeim mun meira um Eistnaflugshelgina til að komast í gegnum dagana.“

Í annað skiptið sem Stefán hugsaði verulega um að hætta var árið 2014. „Hátíðin var sérstaklega stór það árið og ég var alveg úrvinda. Ekki bara út af Eistnaflugi heldur var almennt mikið álag á mér það árið. Ég fékk til dæmis tvisvar sinnum lungnabólgu og var útkeyrður.“

Leitaðir þú þér aðstoðar?

„Já, ég fór og hitti sálfræðing og ræddi málin eins og ég mögulega gat. Þegar ég horfi til baka hefði ég átt að hætta á þessum tíma. Það var orðið of erfitt að halda þetta.“

Varstu undir þrýstingi um að halda áfram?

„Já, og eðlilega. Þessi hátíð er orðin ákveðin stofnun og prófsteinn fyrir yngri hljómsveitir. Sjáum Auðn núna, Kontiuum, Vintage Caravan, Sólstafi, Une Misere, Zhrine og Skálmöld. Allar þessar hljómsveitir sem hafa verið að spila erlendis hafa komist í kynni við fólk á Eistnaflugi sem kemur þeim svo áfram. Stökkpallurinn er þarna.“

Stóð með sjálfum sér og hætti

Kom til tals að flytja hátíðina til Reykjavíkur?

„Já, þetta er það heimskasta sem þú gerir, að vera með hátíð á Íslandi svo langt í burtu frá höfuðborginni. Sérstaklega þegar ferðakostnaðurinn er tekinn inn í. Það er ekkert vit í þessu. En kosturinn við fjarlægðina er sá að fáir myndu keyra í tíu klukkutíma til þess að vera leiðinlegir. Ég er sannfærður um að vegalengdin grisji út fávitana í þessu tilviki.“ Eins og flestir vita þá er einkennisorð Eistnaflugs: Bannað að vera fáviti!

Eins og greint hefur verið frá var mætingin á Eistnaflug árið 2017 langt undir væntingum og mikill halli á rekstrinum það árið. Stefán segir ástæðuna hafa verið hrun í komu erlendra gesta. „Við vorum með stærsta og opnasta hljómsveitaúrval frá upphafi og auglýstum vel. En krónan er sterk og ferðakostnaður hár. Erlendir gestir hafa aldrei verið færri en 500 undanfarin ár og hæst farið upp í 800. Ég held að við höfum ekki náð 50 í sumar.“

Þetta reyndist vendipunkturinn hjá Stefáni þegar kom að Eistnaflugi. „Það kom að því að ég myndi standa með sjálfum mér. Ég gerði það ekki 2010 og ekki 2014, en þarna gat ég ekki meir. Að klára þessa stórkostlegu hátíð þar sem allt gekk vel og sjá að niðurstaðan var þessi.“

Stefán ákvað að hætta að skipuleggja hátíðina en Karl Óttar náði á fjórum mánuðum að safna hópi til að halda Eistnaflugi gangandi, hópi sem meðal annarra inniheldur Helgu Dóru Jóhannesdóttur, Guðmund Rafnkel Gíslason og Ólaf Pál Gunnarsson útvarpsmann. „Ég var mjög svekktur að hætta við þessar aðstæður en er afar ánægður að þetta haldi áfram.“

Fimm sjálfsvíg í senunni

Á síðasta Eistnaflugi voru haldnar umræður í tengslum við geðheilbrigði. Þunglyndi og sjálfsvíg hafa verið eitt stærsta vandamál samfélagsins undanfarin ár og þungarokkheimurinn hefur ekki farið varhluta af því. Á árinu 2017 sviptu fimm ungir strákar í rokksenunni sig lífi. Þar á meðal Bjarni Jóhannes Ólafsson, forsprakki hljómsveitarinnar Churchhouse Creepers.

„Við höfðum talað um að halda svona umræður áður en þegar Bjarni dó urðum við að gera þetta“

„Þetta ár, 2017, var svo erfitt. Það voru góðar stundir inni á milli en það kom hvert áfallið á eftir öðru. Við höfðum talað um að halda svona umræður áður en þegar Bjarni dó urðum við að gera þetta.“

Sálfræðingur stýrði umræðunum og Hrefna og Jónas Sig tónlistarmaður voru í panel. Stefán segist ánægður með að hafa stigið þetta skref en dagurinn hafi verið ákaflega erfiður þegar umræðurnar og sögurnar byrjuðu. „Það var troðfullt og fólk hafði mikla þörf fyrir að tjá sig um þessi mál. Kvíði og þunglyndi eru mjög algeng í þessari senu eins og annars staðar í samfélaginu. Ef einhver þekkir kvíða þá er það ég. Ég var með brunakvíða þar til fyrir þremur árum þegar hann hvarf af einhverjum óútskýrðum ástæðum.“

Er þetta sérstaklega mikið vandamál í tónlist?

„Ég held ekki. Íslendingar eru kvíðnir og þunglyndir. Ég er skíthræddur um að þessi síma- og spjaldtölvuvæðing sé að aftengja fólk frá því sem veitir okkur hamingju. Heimurinn er rammaður inn í skjáinn. Unga fólkið fylgist frekar með Snapchat-stjörnunum sem eru misgáfulegar í stað þess að fara í ræktina eða hitta fólk, en við sem erum eldri þurfum líka að vara okkur. Þetta hefur áhrif á hjónabönd og samveru með börnum okkar. Það þarf líka að keyra einhverja almennilega neyðaráætlun í gang hérna á landi. 26 manns létust í bílslysum en 40 sviptu sig lífi á síðasta ári. Að stofna nefndir er ekki nóg, það þarf að setja fjármagn í geðheilbrigðiskerfið og hvaða bull er það að þjónusta tengd geðheilbrigði sé ekki niðurgreidd.“

„Þetta er krefjandi en líflegt starf og ég tekst við nýja hluti á hverjum degi“

Rekur Hard Rock „Þetta er krefjandi en líflegt starf og ég tekst við nýja hluti á hverjum degi“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Úr kennslunni í veitingarekstur

Stefán starfaði sem íþróttakennari í 14 ár en hætti vegna reglugerðar um sundpróf. „Menntamálaráðuneytið stillti íþróttakennurum upp við vegg. Allir sem ætluðu að kenna áfram urðu að taka prófið sem meðal annars fólst í því að kafa eftir hlutum eins og smábörn. Ég streittist við í tvö ár en tók svo prófið þegar skólastjórinn var kominn í vandræði. Þegar ég kom heim grét ég, mér fannst þetta svo niðurlægjandi og skildi ekki í því af hverju íþróttakennaraprófið dugði ekki. Ég ákvað að hætta að kenna eftir þetta próf. Ég var svo ósáttur við þessi vinnubrögð að ég ákvað að gera eitthvað annað.“

Um tíma starfaði Stefán sem einkaþjálfari og einnig rak hann Skúla Craft bar. Í ágúst bauðst honum staða framkvæmdastjóra Hard Rock Café. Hann fór út til Flórens í svokallaðan Hard Rock-skóla og kynntist þar öllum hliðum rekstursins og prófaði allar stöður. Þegar hann sneri heim var verið að opna nýja staðinn við Lækjargötu, sem er töluvert öðruvísi en sá gamli í Kringlunni. Á efri hæðinni er veitingastaður, á jarðhæðinni búð og í kjallaranum er glæsilegur salur með fullkomnu hljóð- og ljósakerfi. Í kjallaranum er hægt að halda alls konar viðburði. Tónleikar, uppistand og aðrar skemmtanir eru tíðar og einnig giftingar- og fermingarveislur.

Telur þú að reynslan frá Eistnaflugi hafi hjálpað þér?

„Alveg klárt mál. Ég var með þrjú þúsund manns á herðunum í alls konar ástandi og þurfti að glíma við allan fjandann. Eistnaflug var mjög góður skóli. Mér finnst kjallarinn hérna skemmtilegastur og að skipuleggja tónleika og viðburði á vel við mig. Þetta er krefjandi en líflegt starf og ég tekst við nýja hluti á hverjum degi. Mér líður mjög vel núna, við fjölskyldan erum brosandi, hress og kát, og þá er lífið gott. Mér líst vel á hvernig árið 2018 er að byrja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta