fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Dagskráin á Gljúfrasteini í sumar: Megas ríður á vaðið, svo koma Diddú, Kristinn Sigmunds, Ragnhildur Gísla og fleiri snillingar

Margrét Gústavsdóttir
Mánudaginn 28. maí 2018 11:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumarið verður viðburðarríkt á Gljúfrasteini þetta árið en þar eru fyrirhugaðir tónleikar í hverri viku. Sá sem ríður á vaðið er enginn annar en meistari Megas og með honum verður hinn stórgóði gítarleikari Kristinn Árnason.

Ef lesendur hafa ekki þegar gert sér ferð í Gljúfrastein þá er tilvalið að skella sér á tónleika og skoða um leið þessa hönnunarperlu í Mosfellsdalnum því nóbelsskáldið skorti sannarlega ekki góðan smekk.

Gljúfrasteinn var á sínum tíma mikið tónlistarheimili  og ýmsir heimsþekktir tónlistarmenn héldu þar tónleika auk þess sem Halldór sjálfur var prýðilegur píanóleikari og mikill tónlistarunnandi.

Gljúfrasteinn er ansi fagurt slot að innan sem utan.

158 tónleikar síðan 2006

Stofutónleikar hafa verið haldnir á Gljúfrasteini frá því sumarið 2006 og eru þeir orðnir 158 talsins þar sem samtals 331 tónlistarmaður hefur komið fram.

Valdís Þorkelsdóttir, tónlistarkona og starfskona á Gljúfrasteini sá um að setja saman fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af 13 tónleikum með helstu kanónum í íslensku tónlistarlífi en meðal þeirra sem koma fram í sumar, auk þeirra Megasar og Kristins, eru t.d. Ragnhildur Gísladóttir, Kristinn Sigmundsson, Ylja, Diddú og margir fleiri.

Dagskrá stofutónleikaraðarinnar 2018

JÚNÍ

3. júní  Megas og Kristinn H. Árnason gítarleikari leiða saman hesta sína á Sjómannadaginn.
10. júní Teitur Magnússon & Æðisgengið bjóða upp á laufléttan og hressandi bræðing sumarslagara og þjóðlegra notalegheita.
17. júní Ari Bragi Kárason trompet og Eyþór Gunnarsson píanó láta laglínu og spuna leiðast í harmóníu út í óvissuna á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga.
24. júní Umbra Ensemble flytur nýja og forna tónlist í eigin útsetningum.

JÚLÍ

1. júlí Stórsöngvarinn Kristinn Sigmundsson og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó flytja íslensk og erlend sönglög.
8. júlí Ragnhildur Gísladóttir og Björgvin Gíslason koma fram með söng og leik á snittubassa og sítar.
15. júlí Þær Bjartey og Gígja í hljómsveitinni Ylju leika sín uppáhalds íslensku þjóðlög í nýjum útsetningum.
22. júlí Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur flytur lög við ljóð Halldórs Laxness.

ÁGÚST

29. júlí Diddú heiðrar minningu Auðar Laxness, húsfreyjunnar á Gljúfrasteini  í tilefni af 100 ára afmæli hennar. Undirleikur verður í höndum Helgu Bryndísar Magnúsdóttur.
5. ágúst  Vísur og skvísur flytja íslensk og skandinavísk vísnalög þar sem texti og tilfinning mætir hljómþýðum laglínum.
12. ágúst Strákarnir í Pollapönki verða með fjöruga barnaskemmtun.
19. ágúst Bryndís Halla leikur sellósvítur J.S.Bach.
26. ágúst Bjarni Frímann Bjarnason blaðar í nótnasafni Halldórs Laxness og flytur úrval verka á flygil skáldsins

Tónleikarnir fara fram hvern sunnudag frá byrjun júní til loka ágúst og hefjast kl. 16. Miðaverð er 2500 krónur og er það greitt í móttöku safnsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur