fbpx
Þriðjudagur 05.maí 2026

Magnús Máni fékk óvæntan glaðning frá ókunnugum manni í Bónus!

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 30. mars 2017 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Máni 7 ára strákur sem dýrkar Zlatan Ibrahimovic og Hannes Þór Halldórsson. Eins og margir krakkar safnar hann fótboltaspjöldunum sem oft er hægt að næla sér í við kassana í matvöruverslunum.

Að sögn Öldu Hrannar Magnúsdóttur, mömmu Magnúsar Mána, er hann góðhjartaður vill allt fyrir alla gera og er tilbúinn til að leysa öll þau mál sem leysa þarf.

„Hann gerir allt í sínu valdi til að aðstoða þá sem minna mega sín sem og þá sem eru minni og yngri en hann sjálfur. Hann er litla ofurhetjan mín,“

segir Alda.

Í gær var Magnús Máni staddur í Bónus með mömmu sinni og varð fyrir óvæntri og skemmtilegri reynslu. Alda Hrönn ritaði á Facebook síðu sína frásögn af atvikinu:

Hér sit ég með einn 7 ára gamlan sem segist ekki trúa því að fólk geti verið svona gott. – Fyrr í dag fórum við að versla í Bónus, þar skoðar minn fótboltamyndirnar á kassanum með stjörnurnar í augunum (eins og í hverri búðarferð). Það er maður á undan okkur á kassanum sem kaupir einn pakka, og eftir að hafa klárað að borga og koma vörunum sínum í poka ýtir hann aðeins við Magnúsi og segir honum að þetta sé happadagurinn hans og með því sama afhendir hann honum pakka af fótboltaspjöldum. Enn situr hann hér, segir þetta besta dag í heimi með heimsins stærstu stjörnur í augum og trúir ekki að fólk sé svona gott ❤ Það þarf ekki mikið til að gleðja lítil hjörtu og já það er líka alveg rétt hjá honum, það er til mikið af yndislegu fólki þarna úti sem geta glatt lítil hjörtu með litlu.

Alda Hrönn segir að Magnús Máni sjái ekki sólina fyrir elskulegu fótboltaspjöldunum.

„Honum finnst markvarslan við fótboltann lang áhugaverðust og langar honum að verða eins og Hannes okkar Íslendinga þegar hann verður stór.“

Magnús Máni er líka mjög flinkur að gera DAB eins og sést vel á þessari mynd!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið

Birta myndir af sér eftir alvarlegan árekstur á Brúnni – Ansi mörg spor í andlitið
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eitt nafn var á blaði hjá United sem er úr sögunni – Carrick tekur þátt í fundum um framtíðina

Eitt nafn var á blaði hjá United sem er úr sögunni – Carrick tekur þátt í fundum um framtíðina
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Ummæli Van Dijk vekja athygli – Þetta segir hann um stöðuna hjá Liverpool í dag

Ummæli Van Dijk vekja athygli – Þetta segir hann um stöðuna hjá Liverpool í dag
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

Konungur heimsótti Bandaríkin, en hvar var prinsinn?

Konungur heimsótti Bandaríkin, en hvar var prinsinn?
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.