fbpx
Mánudagur 18.maí 2026
Fókus

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Fókus
Þriðjudaginn 5. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn stærsti tískuviðburður ársins, Met Gala, fór fram í gær. Þar kom saman rjómi elítu hinna ríku og frægu. Viðburðurinn í ár var þó nokkuð umdeildur þar sem auðkýfingurinn Jeff Bezoz og eiginkona hans, Lauren Sénchez, voru þar í lykilhlutverki sem heiðursformenn og styrktaraðilar. Talið er að Bezoz hafi eytt rúmum milljarði til að hljóta þennan heiður.

Mótmælendur hvöttu elítuna til að sniðganga viðburðinn þar sem Bezoz, sem er eigandi Amazon, er holdgervingur misskiptingar og vinnuréttarbrota. Höfðu mótmælendur einnig falið plastflöskur inni á Metrapolitian-listasafninu (Metsafnið), þar sem viðburðurinn fer fram, fullar af gulum vökva sem minnti á þvag.

Samkvæmt tilkynningu mótmælenda áttu þessar flöskur að tákna starfsfólk Amazon sem er beitt slíku harðræði að það fær ekki salernispásur og neyðist því til að pissa í flöskur á vinnutíma.

„Fyrirtæki Jeff Bezoz, Amazon, hefur bókstaflega verið kært fyrir að þvinga starfsmenn til að míga í flöskur. Amazon svíkur milljónir undan skatti og Bezoz er einn ríkasti maður heims. Metsafnið er að míga á sig fyrir að heiðra Jeff á Gala-viðburði sínum. Á meðan þau fagna milljarðamæringum Trumps skulum við hæðast að þeim.“

Tekið er fram að flöskurnar eru fullar af gerviþvagi, enda gjörningurinn táknrænn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Árni Tómas er látinn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið – „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“

Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið – „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni

Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Patrekur Jaime leysir Ásdísi bæjarstjóra af – Þetta eru áherslumál hans í Kópavogi

Patrekur Jaime leysir Ásdísi bæjarstjóra af – Þetta eru áherslumál hans í Kópavogi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stjarna Finna í Eurovision segir að sigur yrði hin fullkomna hefnd – „Þetta yrði mín langatöng til hans“

Stjarna Finna í Eurovision segir að sigur yrði hin fullkomna hefnd – „Þetta yrði mín langatöng til hans“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur