fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Svarar fyrir sig eftir að hafa fengið gagnrýni fyrir að vera á snekkju um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Teymi Kylian Mbappé hefur svarað gagnrýninni sem beinst hefur að franska stórstjörnunni síðustu daga eftir að stuðningsmenn Real Madrid létu óánægju sína í ljós vegna ferðar hans til Sardiníu á meðan hann er frá vegna meiðsla.

Mbappé hefur sætt harðri gagnrýni eftir að myndir birtust af honum í fríi með kærustu sinni, leikkonunni Ester Expósito, á sama tíma og Real Madrid er á barmi þess að missa spænska meistaratitilinn til Barcelona.

Nú hefur hans fólk sent frá sér yfirlýsingu til AFP-fréttastofunnar þar sem gagnrýninni er hafnað.

„Hluti gagnrýninnar byggir á of mikilli túlkun á atriðum sem tengjast endurhæfingartímabili sem er stranglega undir eftirliti félagsins,“ segir í yfirlýsingunni.

Mbappe naut sín um helgina.

Þá er því einnig hafnað að Mbappé sýni skort á metnaði eða skuldbindingu gagnvart liðinu. „Þetta endurspeglar alls ekki raunveruleikann varðandi þá vinnu og þá skuldbindingu sem Kylian sýnir daglega fyrir hag liðsins.“

Mbappé hefur verið frá vegna vöðvameiðsla í vinstri fæti og Real Madrid hefur átt undir högg að sækja án hans á lokakafla tímabilsins.

Stuðningsmenn félagsins hafa þó gagnrýnt tímasetningu ferðarinnar harðlega og telja hana óheppilega á viðkvæmum tímapunkti í titilbaráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Conte vill segja upp störfum

Conte vill segja upp störfum
433Sport
Í gær

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Í gær

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi