fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Flugeldasýning fyrir utan hótel Atletico í London í nótt

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. maí 2026 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Arsenal eru sagðir hafa skotið upp flugeldum fyrir utan hótel Atlético Madrid í London í nótt fyrir síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildinni.

Liðin mætast á Emirates Stadium í kvöld þar sem sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar er undir. Arsenal er talið í góðri stöðu eftir að hafa gert 1-1 jafntefli á Metropolitano-vellinum í fyrri leiknum í síðustu viku.

Samkvæmt fréttum voru flugeldar sprengdir ítrekað fyrir utan Courthouse Hotel í Shoreditch þar sem Atlético dvelur, og hófst látagangurinn um klukkan 1:30 eftir miðnætti. Talið er að uppákomurnar hafi raskað svefni margra leikmanna spænska liðsins.

Spænskir fjölmiðlar segja að Atlético hafi tilkynnt atvikið til UEFA og óskað eftir því að málið verði skoðað.

Atlético hafði valið annað hótel en það notaði í síðustu ferð sinni til London eftir 4-0 tap gegn Arsenal í deildarkeppni Meistaradeildarinnar í október. Spænskir fjölmiðlar sögðu breytinguna byggða á hjátrú, þó að þjálfarinn Diego Simeone hafi grínast með að ákvörðunin hefði einfaldlega verið tekin til að spara peninga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Conte vill segja upp störfum

Conte vill segja upp störfum
433Sport
Í gær

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Í gær

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi