fbpx
Mánudagur 08.júní 2026

„Við erum þau sem fáum að heyra að þessi geðfatlaði sé bara úrhrak“

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 16. október 2017 23:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Langar þig að skipta við mig?

Ég skrifa þetta nafnlaust. Ég skrifa þetta sem móðir, faðir, sonur og dóttir. Hver erum við? Jú við erum aðstandendur geðfatlaða fólksins. Við erum búin að eiga í stanslausum baráttum við geðheilbrigðiskerfið. Við erum þau sem höfum þurft að berjast, tapa, vera reið, gráta og syrgja. Við erum þau sem þurfa að flýja heimilin sín af því að það má ekki brjóta á réttindum þess geðfatlaða. Við erum þau sem kippast til í hvert sinn sem síminn hringir, af því að við vitum ekki hvenær það komi að þessu. Við erum þau sem að þurfa reglulega að hringja í lögregluna vegna þess að þessi geðfatlaði er týndur. Við erum þau sem að tökum á móti öllum ranghugmyndum sem þessi geðfatlaði fær. Við erum þau sem að horfum á þennan geðfatlaða þegar hann veit ekki lengur hvað er í gangi eða hvar hann er. Við erum þau sem eru hætt að sofa vegna þess að þessi geðfatlaði er núna orðinn heimilislaus. Við erum þau sem grátbiðja alla um aðstoð en fá hana ekki. Við erum þau sem höldum niðri í okkur andanum af stressi og sársauka, þegar einhver verður úti. Við erum þau sem örmagnast og gráta dag eftir dag. Við erum þau sem fáum að heyra að þessi geðfatlaði sé bara úrhrak Reykjavíkurborgar. Við erum þau sem fáum að gjalda fyrir vanhæfni geðdeildar. Við erum þau sem fá að heyra að geðdeild sé ekki búseta. Við erum þau sem lenda í meiriháttar vandræðum með hitt og þetta, við erum líka þau sem að elska þennan geðfatlaða og munum alltaf gera. Við erum aðstandendur.

Höfundur er 19 ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist

Nef og fætur geta haft áhrif á hversu auðveldlega fólk veikist
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða

Metfengur hjá spænsku lögreglunni – Kókaín að andvirði 120 milljarða
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál

DNA úr barnabarni leysti dularfullt mál
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal

Tíu færa sig um set – Goðsögn þar á meðal
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag

Tíu ódýrustu einbýlishúsin á Íslandi í dag
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“

Gáttaður yfir tíðindum frá Hafnarfirði – „Ég verð ekki oft orðlaus en varð það þarna“
Pressan
Í gær

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann

Stóð í röð til að vera einn af þeim 1.000 sem sváfu hjá Bonnie Blue – Segir frá hvað stoppaði hann