fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Inga Hlín hlaut þrenn verðlaun á Stevie Awards fyrir konur í viðskiptum

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 18. nóvember 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verðlaunin eru veitt konum sem hafa skarað fram úr í viðskiptum eða sem stjórnendur í atvinnulífi um allan heim og voru nú veitt í 14 sinn. Inga Hlín hlaut gullverðlaun sem frumkvöðull ársins, silfurverðlaun sem stjórnandi ársins, og silfur sem kona ársins í flokki stjórnvalda og stofnanna fyrir störf sín hjá Íslandsstofu síðustu ár.

„Ég er ótrúlega þakklát og glöð með þennan heiður en ég lít fyrst og fremst á þetta sem viðurkenningu á þeim árangri sem við höfum náð með samtakamætti allra þeirra sem koma að því að markaðssetja Ísland sem áfangastað. Undanfarin ár hafa fyrirtæki og hið opinbera unnið saman að því að kynna Ísland undir merkjum Inspired by Iceland sem er orðið þekkt og verðmætt vörumerki. Þessi samtakamáttur hefur skipt sköpum fyrir okkur Íslendinga við að byggja upp íslenska ferðaþjónustu og fanga athygli heimsins sem áfangastaður. Það er mikilvægt að við höfum í huga að við erum í gríðarlegri samkeppni við aðra áfangastaði í heiminum en höfum vakið athygli fyrir samstarf og samstöðu hér á landi í þessari verðmætustu útflutningsgrein þjóðarinnar og af því er ég afar stolt.“

Stevie Awards fyrir konur í viðskiptum, heiðra stjórnendur, frumkvöðla og atvinnurekendur á heimsvísu. Stevie verðlaunin eru talin vera ein af fremstu viðskiptaverðlaunum í heiminum. Yfir 1.500 tilnefningar bárust í ár frá 25 löndum. Um 170 stjórnendur víða um heim sátu í dómnefnd sem valdi úr tilnefningunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari

BBC segir öll vötn renna til þess að Salah fari
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?

Steinar ferðaðist með bleika ferðatösku – Er hann afkastamikill raðmorðingi?
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?

Af hverju finnst okkur stundum einhver vera nærri okkur, þrátt fyrir að engin sé þar?
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu

Þegar fólk fer á eftirlaun sér það oftast eftir þessu vali sínu í lífinu
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.