
Tijjani Reijnders gæti verið á leið frá Manchester City aðeins ári eftir komu sína, samkvæmt Football Insider.
Miðjumaðurinn, sem kom frá AC Milan fyrir um 50 milljónir punda síðasta sumar, hefur átt erfitt með að festa sig í sessi í liði Pep Guardiola þrátt fyrir lofandi byrjun.
Fjöldi félaga fylgist nú með stöðu hans, þar á meðal Juventus, en einnig er sagt að fleiri lið í Serie A hafi áhuga.
Reijnders byrjaði vel hjá City og skoraði og lagði upp í sínum fyrsta leik, en hlutverk hans hefur minnkað eftir því sem hefur liðið á tímabilið vegna mikillar samkeppni um stöður í hópnum.
City ku vera opið fyrir að selja Reijnders fyrir rétt verð.