fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
433Sport

United mun bjóða Carrick starfið – Bruno og fleiri sagðir hafa rætt við stjórnina

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 4. maí 2026 12:47

Mynd: Manchester United

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick fær að öllum líkindum boð um að verða stjóri Manchester United til frambúðar eftir að liðið tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á ný. Guardian segir frá.

Carrick, sem tók við sem stjóri tímabundið í janúar eftir hörmulegt gengi Ruben Amorim í brúnni, hefur skilað tíu sigrum í fjórtán leikjum í ensku úrvalsdeildinni og leiddi United til 3-2 sigurs á Liverpool um helgina.

Samkvæmt Guardian er staðan þannig að starfið sé í raun hans að hafna. Forráðamenn félagsins eru afar ánægðir með hans störf.

Jason Wilcox, knattspyrnustjóri, og Omar Berrada, framkvæmdastjóri, hafa verið sérstaklega hrifnir af framgöngu hans, og leikmenn virðast einnig styðja hann.

Stórir leikmenn eins og Bruno Fernandes og Harry Maguire eiga að hafa rætt við yfirmenn og tjáð þeim að þeir vildu halda Carrick í starfi.

Carrick sagði eftir sigurinn á Liverpool að hann sé mjög ánægður í starfi á Old Trafford og verður að teljast líklegt að hann taki boðinu um að vera áfram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt

Stórlið bætist í hópinn sem vilja miðjumann City frítt
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja

Eftir erfitt tímabil er Real Madrid sagt tilbúið að selja
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Stuðningsmenn brjálaðir eftir dóm gærdagsins – Vilja fá endurgreiðslu fyrir bókuðum ferðalögum

Stuðningsmenn brjálaðir eftir dóm gærdagsins – Vilja fá endurgreiðslu fyrir bókuðum ferðalögum
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan

Valdi tvo hópa í mismunandi verkefni – Lokakeppni EM framundan
433Sport
Í gær

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?

Verður þetta byrjunarlið Englandsmeistaranna á næstu leiktíð?
433Sport
Í gær

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns

Allt í rugli hjá Southampton – Leikmenn íhuga að leita réttar síns