fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Ótrúlegir hlutir gerðust eftir að myndband af 85 ára konu fór í dreifingu

Fókus
Fimmtudaginn 4. júní 2026 13:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Átta­tíu og fimm ára kona sem starfar enn við þrif í kvikmyndahúsi í Tennessee í Bandaríkjunum hefur fengið óvænta aðstoð eftir að myndband af henni við störf fór eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla.

Konan, Mary Ellen Eron, hefur starfað í kvikmyndahúsi í borginni Maryville í 45 ár. Hún vakti athygli eftir að kvikmyndagestur, Brooklyn Green, tók myndband af henni þar sem hún sást bera þungan ruslapoka og ýta hreingerningavagni um húsið á kvöld eitt fyrir skemmstu.

Myndbandið hefur verið skoðað meira en 13 milljón sinnum á samfélagsmiðlum, en með því fylgdu skilaboð frá Green þar sem hún hvatti fólk til að leggja sitt af mörkum svo konan gæti notið þess að fara á eftirlaun.

„Hjálpum þessari yndislegu konu að komast á eftirlaun. Enginn ætti að þurfa að vinna á þessum aldri,“ skrifaði Green.

Í kjölfarið stofnaði hún söfnunarsíðu á GoFundMe. Green sagði í viðtali við bandaríska fjölmiðla að hún hefði ekkert vitað um Eron þegar hún sá hana við störf.

„Ég vissi ekki einu sinni hvað hún hét. Ég sá bara konu sem vann af mikilli samviskusemi og lagði hart að sér,“ sagði Green.

Áður en söfnuninni var lokað höfðu safnast 146.317 dollarar, jafnvirði rúmlega 20 milljóna íslenskra króna á núverandi gengi. Yfir 7.500 manns lögðu söfnuninni lið.

Green afhenti Eron niðurstöður söfnunarinnar í gær og var Eron skiljanlega í sjöunda himni.

„Guð minn góður. Þetta eru miklir peningar,“ sagði hún.

Samkvæmt frétt New York Post hefur Eron um árabil lagt sitt af mörkum til samfélagsins, meðal annars með því að aðstoða heimilislaust fólk og styðja við starf kirkju sinnar.

Í myndbandi sem birt var eftir afhendinguna þakkaði hún þeim þúsundum einstaklinga sem höfðu lagt söfnuninni lið. „Ég tel mig afar blessaða. Kærar þakkir til allra sem hafa lagt af mörkum,” sagði hún.

Meðfylgjandi er myndband sem New York Post birti á YouTube:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“

Áhrifavaldur spáir endalokum OnlyFans – „Á sínum tíma fannst manni þetta byltingarkennt“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu

Sigmundur Davíð bræðir hjörtu með nýjum hvolpi – Karen kemur með einfalda kröfu
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur
Fókus
Fyrir 1 viku

Celebrating George Michael kemur til Íslands

Celebrating George Michael kemur til Íslands