fbpx
Fimmtudagur 21.maí 2026
Fréttir

Risasekt rafrettukónga lækkuð í Landsrétti – Smygluðu gífurlegu magni af sígarettum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms yfir þeim Snorra Guðmundssyni og Sverri Þór Gunnarssyni fyrir stórfeld tollalagabrot, en lækkaði hressilega mjög háar sektir sem héraðsdómur lagði á þá.

Sverrir er eigandi söluturnsins Drekans, sem og Piknik-keðjuna,  en Snorri fyrrverandi eigandi Póló (fram til 2023), en þessar verslanir eru landsþekktar fyrir sölu á rafrettum og nikótínvörum. Brotin frömdu þeir tvímenningnar í gegnum félag sitt Áfengi og tóbak ehf. Smygluðu þeir til landsins vel á aðra milljón sígarettna og 5.400 pakkingum af reyktóbaki. Þessar tóbaksvörur tilgreindu þeir í tollskýrslum sem ýmist prótein eða pappír og komu þeir sér þannig undan greiðslu á tóbaksgjöldum sem nemur 740 milljónum króna.

Í héraði voru þeir Snorri og Sverrir dæmdir hvor um sig í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar, hvor  um sig að fjárhæð 1,1 milljarður króna, eða samtals 2,2, milljarðar.

Landsréttur staðfesti í dag skilorðsbundna fangelsisdómana en lækkaði sektina á hvorn fyrir sig niður í rúmlega 740 milljónir króna.

Landsréttur staðfesti líka dóm héraðsdóms um upptöku á eignum þeirra félaga, bankainnstæðum og fasteignum. Þar á meðal eru sumarhús í Bláskógabyggð, atvinnuhúsnæði í Stykkishólmi og einbýlishús í garðabæ. Upptækar bankainnstæður nema tæplega tvö hundruð milljónum króna.

Ítarlega dóma Landsréttar og héraðsdóms í málinu má lesa hér.

Athugasemd: Í fyrri útgáfu fréttarinnar var fullyrt að Snorri væri núverandi eigandi Póló. Það er ekki rétt og er beðist velvirðingar á missögninni. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis

Þremenningar í vanda: Komu til landsins með mikið magn af kókaínvökva innvortis
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Benedikt harðorður: „Þetta er íslenskt heimatilbúið kjaftæði“

Benedikt harðorður: „Þetta er íslenskt heimatilbúið kjaftæði“
Fréttir
Í gær

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“

Elliði bendir á sturlaða staðreynd um stýrivaxtahækkunina í morgun – „Takk fyrir túkall“
Fréttir
Í gær

Amnesty International setur af stað herferð fyrir réttindum fólks á flótta

Amnesty International setur af stað herferð fyrir réttindum fólks á flótta
Fréttir
Í gær

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar
Fréttir
Í gær

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur

Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur