

Bayern München hefur samkvæmt erlendum miðlum áhuga á að fá John Stones til félagsins í sumar.
Enski varnarmaðurinn er sagður vera á leið frá Manchester City þegar samningur hans rennur út eftir tímabilið og Bayern fylgist nú grannt með stöðu hans. Stones hefur verið lykilmaður hjá City undanfarin ár og hjálpaði félaginu meðal annars að vinna Meistaradeild Evrópu og fjölda Englandsmeistaratitla undir stjórn Pep Guardiola.
Þrátt fyrir að hafa glímt við meiðsli á köflum er hinn 31 árs gamli landsliðsmaður enn talinn einn öflugasti varnarmaður Evrópu þegar hann er heill heilsu.
Bayern München vill styrkja varnarlínu sína fyrir næsta tímabil og sér félagið mögulega mikið tækifæri í því að fá Stones á frjálsri sölu.
Framtíð Manchester City er einnig í ákveðinni óvissu eftir fregnir um að Pep Guardiola muni yfirgefa félagið í sumar og gætu fleiri breytingar orðið á leikmannahópnum í kjölfarið.
Stones hefur verið hjá City síðan árið 2016 eftir að hann kom frá Everton fyrir stórfé á sínum tíma.